Blik - 01.06.1976, Page 13
Gjafir færðar Byggðarsafni Vestmamiaeyja
í þessu hefti Bliks birti ég fram-
hald á minjaskrá Byggðarsafnsins.
Skýringar minjaskrárinnar bera þess
vissulega vitni, hversu margir hafa
lagt hönd á plóginn um það að efla
þessa stofnun, sem nú Ioks virðist
öryggi fyrir að verða muni varanleg
menningarstofnun í bænum okkar.
Síðan gosið brauzt út á Heimaey
og við urðum að flýja með safnið
burt úr kaupstaðnum, hef ég unnið
að því marga stund að skrá safnið til
fullnustu og búa undir flutning á
því í varanlegt húsnæði.
Alltaf eflist þetta safn okkar Eyja-
búa fyrir velvild og aukinn skilning
á gildi þess, þegar tímar líða.
Nýlega barst Byggðarsafninu kær-
komin göf frá hjónum, sem aldrei
hafa til Eyja komið en bera hlýjan
hug til byggðarlagsins og vilja vissu-
lega leggja sitt til að efla menningu
þess. Þessi mætu hjón eru Alfreð
Guðmundsson, forstöðumaður Kjar-
valsstaða i Reykjavík, og kona hans
frú Guðrún Árnadóttir.
Nú er það orðið lýðum ljóst, að
utan Reykjavíkur mun enginn eiga
fleiri listaverk eftir Jóhannes Kjarval
en Vestmannaeyjakaupstaður. Til
þess að auka gildi þessarar dýrmætu
eignar hafa hjón þessi gefið Byggð-
arsafninu bækur, sem listamaðurinn
skrifaði og gaf út sjálfur eða skrifað-
ar hafa verið um hann.
Hér skal birtur listi yfir þær:
1. Árið 1925 á nýársdag gaf Jó-
hannes Kjarval út blað, sem hann
kallaði Árdegisblað listamanna. Það
er vissulega í fárra höndum. Þar eru
þessi orð til íslenzkra sjómanna (árn-
aðaróskir listamannsins): Burstfagr-
ir bæir flytja sjóhetjum Islands góð-
ar óskir á nýárinu.
2. Eimskip fjörutíu ára, kvæði
(1954).
3. Ljóðagrjót, kvæðabók lista-
mannsins (1956).
4. Hvalasagan frá 1897 (1957).
5. Alfreðsljóð (1961).
6. Lóan (Ljóð 1961).
Bækur um listamanninn:
1. Kjarval. Myndir eftir Jóhannes
Sveinsson Kjarval með formálsorð-
um eftir Halldór Kiljan Laxness. -
Mál og menning 1938.
2. Jóhannes Sveinsson Kjarval
með inngangsorðum eftir H. K. L.
Fjölmargar myndir af listaverkum
listamannsins. Helgafell gaf út árið
1950.
B LIK
11