Blik - 01.06.1976, Qupperneq 27
aðsigi, þó að hægt færi fyrst í stað.
Og svo kom að því, að ritstjórarnir
lýstu yfir því, að Kommúnistar og
Bolsjevikar væru þeim gæluyrði en
orðið „Jafnaðarmenn“ væri skamm-
aryrði í þeirra eyrum. Reynsla rit-
stjóranna af starfi Jafnaðarmanna
fyrir verkalýðinn í landinu, sögðu
þeir, hefði umskapað hið fagra orð
jafnaðarmennska og gert það að
skammaryrði. Þessa yfirlýsingu rit-
stjóranna tóku lesendurnir ekki al-
varlega fyrst í stað, heldur meir eins
og stríðni eða kerskni.
En hak við tjöldin var mikið
skeggrætt og bollalagt, þó að afleið-
mgar þess sæju ekki Ijós dagsins
lengi vel, því að til skarar mátti ekki
láta skríða fyrr en tryggt væri, að
klofningsmenn gætu haft með sér
meiri hluta innan verkalýðs- og verzl-
unarsamtakanna, þegar til stáls syrfi
og klofningurinn yrði lýðum ljós.
Em þessa starfsemi að tjaldabaki
hlýt ég að fara hér nokkrum orðum,
því að þessi duldu öfl með ýmsum
pólitískum fyrirbrigðum urðu þess
valdandi, að Kaupfélagið Drífandi
varð að engu, leystist upp öllum
verkalýð kaupstaðarins til óbætan-
legs tj óns og trú manna á samtaka-
máttinn til mikils hnekkis.
Um tíma gerðist hinn þekkti blaða-
maður Alþýðuflokksins. V. S. V., rit-
stjóri Eyjablaðsins. Við það starf
hélzt hann í 10 vikur. Þá hröklaðist
hann frá blaðinu. Hann skrifaði oft
um störf „Jafnaðarmanna“ fyrir hag
verkalýðsins. Honum var vissulega
ekki þökkuð störfin, þegar hann
hvarf úr bænum. Jón nokkur Rafns-
son gerðist þá einn ritstjóri blaðsins.
Það hætti svo að koma út von bráðar
eða í júlímánuði 1927. Þá höfðu
„Félugar Stalíns“ vaðið uppi í for-
ustuliði Alþýðuflokksins í Vest-
mannaeyjum 1-2 ár og valdið þar
biturleik og sundrung. Á ýmsu tók að
bóla í hagsmunabaráttunni, sem all-
ur þorri verkamanna í bænum hafði
ekki látið sér koma til hugar að til
mála kæmi.
Augu manna tóku að opnast fyrir
ofbeldishneigðum í starfseminni inn-
an verkalýðssamtakanna. Þær höfðu
látið á sér kræla fyrr, þó að dult
færi í fyrstu. Sögur tóku að ganga
um fyrirbrigðin þau t. d. í kolaverk-
fallinu árið 1926. Þá voru ungir
menn innan verkalýðshreyfingarinn-
ar í kaupstaðnum látnir smíða sér
kylfur, sem þeir földu í vinstri jakka-
erminni, þegar á hólminn var geng-
ið. Barefli þessi skyldu sjá dagsins
ljós og notast, þegar vissir „foringj-
ar“ gæfu merki. — Ég, sem þetta rita,
var þá ekki fluttur til Eyja, en aldr-
aðir kunningjar mínir, sem voru
með í átökunum og lutu í barnaskap
sínum, eins og þeir segja sjálfir,
„Félögum Stalíns“, hafa sagt mér
þetta og leyft mér að segja frá því.
Til „bardaga“ kom þarna ekki,
sem betur fór.
Þetta atvik og ýmis fleiri áþekk því
vöktu til íhugunar og deilna milli
verkalýðsforingjanna gömlu, sem yf-
irleitt vildu fara fram með gát og
festu ,svo sem stofnendur Verka-
mannafél. Drífanda og Kf. Drífanda.
BLIK
25