Blik - 01.06.1976, Page 178
dóttir frú Mörtu, gaf Byggðarsafn-
inu skotthúfuna. (Sjá nr. 602).
982. Skotthúfa. Þessa skotthúfu
prjónaði frú Ragnhildur Þórarins-
dóttir verzlunarstjórafrú í Júlíus-
haab árið 1880 og notaði um tugi
ára. Frú Elínborg Gísladóttir í Lauf-
ási (nr. 5 við Austurveg), dóttir frú
Rafnhildar, gaf safninu húfuna.
983. Svunta, brúnleit. Hún er mjög
gömul, líklega um það bil 100 ára.
Frú Nikólína Eyjólfsdóttir húsfr. í
Laugardal (nr. 5 B) við Vesturveg,
gaf Byggðarsafninu svuntuna. Hún
erfði hana eftir ömmu sína, en sjálf
var frú Nikólína fædd árið 1888.
984. Sönghúfa. Eitt sinn var við
barnaskólann í Vestmannaeyjum
nafngetinn söngflokkur, sem ferðað-
ist til meginlandsins og gat sér góð-
an orðstír fyrir söng sinn í Reykja-
vík og víðar. Helgi Þorláksson, kenn-
ari við barnaskólann, stofnaði þenn-
an kór árið 1944 og stjórnaði hon-
um. Kórinn hlaut nafnið „Smávin-
ir“. Þarna á Byggðarsafnið sýnis-
horn af sönghúfum kórsfélaganna.
985. „Tyrkjahnappurinn“. Nokkru
eftir síðustu aldamót fannst hnappur
jressi, þegar pældur var kálgarður
Jóns formanns Ingimundarsonar í
Mandal í námunda við íbúðarhúsið
(nr. 18 við Njarðarstíg). Hnappur-
inn er með hálfmána og stjörnu,
sem mótað er á hann. Þannig er hann
merktur ræningjunum norður-áfrík-
önsku 1627. Við köllum hann þess
vegna ,,Tyrkjahnappinn“.
Vafalaust hefur hann slitnað af
ræningjajakka í átökunum hér í ná-
176
munda við hafnarvoginn 17. og 18.
júlí 1627, þegar ræningjarnir drápu
fólk eða rændu og fluttu út á skip.
986. JJpphlutsbúningur. Bolinn,
pilsið og beltið gaf Byggðarsafninu
frú Jórunn Ingimundardóttir, Breka-
stíg 15 hér í bæ, til minningar um
vinkonu sína frú Bjarghildi Einars-
dóttur, síðast til heimilis að Mið-
stræti 24 hér í bæ.
987. Upphlutsskyrta og upphluts-
svunta. Frú Elín Halldórsdóttir, kona
Ágústs Sigfússonar, Landagötu 16,
gaf þessa hluti Byggðarsafninu.
988. Upphlutsnál. Nál þessa smíð-
aði Olafur bóndi Guðmundsson, sem
bjó á Kirkjubæ á fyrri hluta síðustu
aldar. Síðari kona hans var frú Guð-
rún yngri Pálsdóttir prests og skálds
Jónssonar að Kirkjubæ.
Afkomandi Ölafs bónda Guð-
mundssonar og fyrri konu hans, frú
Helgu Olafsdóttur, gaf Byggðarsafn-
inu nálina. Hún er frú Ingibjörg
Guðmundsdóttir kennari, Rauðarár-
stíg 3, Rvík. Ólafur bóndi Guð-
mundsson var vopnasmiður Herfylk-
ingar Vestmannaeyja á árunum 1857
-1860. (0. G. lézt 1869).
989. Viðhafnarvesti séra Brynj-
ólfs Jónssonar, sóknarprests að Ofan-
leiti (1860-1884). Þegar prestur lézt
árið 1884, erfði frú Jónína húsfr. á
Löndum, dóttir sóknarprestsins, vesti
þetta. Þegar hún lézt árið 1904, erfði
Brynjúlfur Sigfússon, organisti og
síðar söngstjóri, sonur frúarinnar,
vestið eins og hvern annan ættargrip.
Ekkja hans, frú Ingrid Sigfússon,
gaf Byggðarsafninu vestið.
BLIK