Blik - 01.06.1976, Side 208
Frænda- og vinafólk í Eyjum
Eyjafólk það, sem sýnt er á mynd
þessari, var á sínum tíma nafnkunn-
ugt fólk í byggðarlagi sínu og sumt
af því landkunnugt.
Jóhann Jörgen Johnsen var fyrir-
málsbarn frú Guðfinnu Jónsdóttur
Austmanns, heimasætu að Ofanleiti.
Hún giftist síðar Árna Einarssyni frá
Vilborgarstöðum. Mynd af þessum
nafnkunnu og mætu hjónum er hirt
í Bliki árið 1967, bls. 11.
Arni Einarsson var bóndi, með-
hjálpari í Landakirkju um langt ára-
bil og alþingismaður Eyjabúa um
skeið. Sonur þeirra hjóna var Sigfús
Árnason, organisti Landakirkju,
söngstjóri hins elzta karlakórs í Eyj-
um, póstmeistari frá 1896-1904, út-
gerðarmaður og formaður á stærsta
teinæring í verstöðinni, tíæringnum
Auróru. Þeir voru þannig hálfbræð-
ur Jóhann Jörgen Johnsen í Fryden-
dal og Sigfús Árnason frá Vestri-
Löndum. Móðir þeirra var sem sé
frú Guðfinna Jónsdóttir prests Aust-
manns að Ofanleiti, húsfreyja á Vil-
borgarstöðum.
Sigfús Árnason var kvæntur frú
Jónínu K. N. Brynjólfsdóttur prests
Jónssonar að Ofanleiti. (Sjá grein-
ina Frumherjar í Bliki árið 1967).
Myndin á bls. 207 er af börnum
þessara bræðra, Jóhanns og Sigfúsar.
ásamt tveim öðrum nátengdum.
Frá vinstri:
Guðni Hjörtur Johnsen frá Fryden-
dal, síðar útgerðarm. og kaupm.,
f. 15. júní 1888.
Lárus (Kristinn Lárus) Johnsen frá
Frydendal, síðar verzlunarm. og
hollenzkur vísikonsúll, f. 31. des.
1884.
Leifur Sigfússon, síðar tannlæknir
og franskur vísikonsúll, f. 4. nóv.
1892.
Brynjúlfur Sigfússon, síðar kaupm.,
organisti og söngstjóri, f. 1. marz
1885.
Árni Sigfússon, síðar kaupm. og út-
gerðarm., f. 31. júlí 1887.
Gísli J. Johnsen, síðar kaupm., ensk-
ur konsúll og útgerðarm., f. 10.
rnarz 1881.
Ásdís (Anna Ásdís) Gísladóttir frá
Hlíðarhúsi, kona Gísla J. Johnsen.
Þau giftust árið 1904.
Drengurinn, sem stendur hjá
frúnni. er Jóhann Jörgen Sigurðsson
hálfbróðir þeirra bræðra, sona Jó-
hanns Jörgen Johnsen, veitingamanns
í Frydendal. Þennan dreng átti frú
Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen í
206
BU K