Blik - 01.06.1976, Page 211
ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON
Hjónin í Klöpp
Myndin á bls. 211 birtist í Bliki
árið 1967. Hér læt ég fylgja nánari
og fyllri skýringu en þar er birt og
töluvert á annan veg.
Mynd þessi er tekin við suðurvegg
Landakirkju 14. okt. 1892. Fram
hefur farið í kirkjunni brúðkaups-
vígsla. Hana framkvæmdi séra Odd-
geir Þórðarson Guðmundssonar,
sóknarprestur að Ofanleiti (með loð-
húfu á höfði lengst til hægri á mynd-
innil. Brúðhjónin eru Kristján Ingi-
mundarson hreppstjóra Jónssonar á
Gjábakka og Sigurbjörg Sigurðar-
dóttir frá Eystra-Rauðafelli undir
Eyjafjöllum. Þessi hjón áttu eftir að
verða ein hin mætustu hjón í Vest-
mannaeyjabyggð á sinni tíð.
Foreldrar brúðgumans, hjónin
Ingimundur Jónsson og Margrét
Jónsdóttir á Gjábakka í Eyjum voru
gefin saman árið 1858 og bjuggu á
Gjábakka 54 ár eða þar til Ingi-
mundur bóndi og hreppstjóri lézt
árið 1912. Hann kvæntist heimasæt-
unni á Gjábakka, Margréti Jónsdótt-
ur bónda þar Einarssonar. Kona hans
og móðir Margrétar, var frú Sigríð-
ur Sæmundsdóttir húsfreyja á Gjá-
bakka um það bil tvo tugi ára.
Foreldrar brúðarinnar voru Sig-
urður Sigurðsson bóndi á Eystra-
Rauðafelli og kona hans Þorbjörg
Sveinsdóttir, systir Sigurðar útgerð-
armanns og smiðs í Nýborg í Eyjum.
Sigurbjörg Sigurðardóttir fæddist að
Eystra-Rauðafelli árið 1861. Hún
missti föður sinn, er hún var fimm
ára gömul (1866) og fór því ung í
vist til annarra, þar sem það hét og
svo, að hún ynni fyrir sér, þegar hún
stálpaðist.
Arið 1883 leitaði hún sér atvinnu
úti í Vestmannaeyjum. þá 22 ára að
aldri. Hún réðist þá að Nýborg til
hjónanna Sigurðar Sveinssonar,móð-
urbróður síns, og konu hans Þórönnu
Ingimundardóttur ljósmóður frá Gjá-
bakka, systur Kristjáns.
Þegar svo Kristján Ingimundar-
son á Gjábakka vitjaði systur sinnar,
húsfreyjunnar í Nýborg, hreifst hann
mjög af vinnukonunni undan Eyja-
fjöllum. Og að því dró, að þau felldu
hugi saman.
Arin 1884 og 1885 var Sigurbjörg
Sigurðardóttir vinnukona í Julíus-
háb hjá verzlunarstjórahjónunum
Gísla Engilbertssyni og frú Ragn-
hildi Þórarinsdóttur.
Haustið 1885 réðst Sigurbjörg Sig-
urðardótatir vinnukona til hjónanna
BLIK 14
209