Hugur - 01.01.2018, Side 129

Hugur - 01.01.2018, Side 129
 Eftir dauða póstmódernismans og endalok sögunnar 129 tækum hætti að fjarvera hins raunveru- lega varð áþreifanleg“ (bls. 36). Gildi póstmódernismans var því sem eins kon- ar broddfluga, svo gripið sé til klassískrar líkingar Sókratesar. Hvað svo sem til er í gagnrýninni og ásökunum á hendur póstmódernisman- um, þá gerir staðan í dag þó niðurstöðu Björns miklum vandkvæðum bundna. Við lestur þessa kafla vöknuðu upp hug- leiðingar um þær samfélagsbreytingar sem hafa orðið á þeim rétt rúmu tíu árum frá því að Björn ritar hann. Því póst- módernisminn hvarf nefnilega ekki al- farið af sjónarsviðinu. Raunar mætti segja að hann hafi undanfarið gengið í gegnum nokkurs konar endurnýjun lífdaga. Ekki þó sem stefna sem fræðimenn aðhyllast í raun, heldur sem blóraböggull sem kennt er um allt frá bágri stöðu hugvís- indadeilda til kosningar Donalds Trump. Er þá oft bent á að það skeytingarleysi um sannleikann sem póstmódernisminn átti að hafa boðað var notað til að grafa undan pólitískri baráttu og orðræðu. Það er þó auðvitað rétt að flest sem kennt er við póstmódernismann hefur lítið með hann að gera í raun. En þegar greinin var upprunalega skrifuð var vissulega nærtækara að líta svo á að póstmódern- isminn og hugmyndir honum tengdar hefðu hrist rækilega upp í heimspekileg- um forsendum um veruleikann áratugina á undan með því að boða frumspekilega gagnrýni og greiningu á nýjan og róttæk- an hátt – nokkuð sem hafði aðeins góð áhrif á sjálfsrannsókn heimspekinnar. En í dag má spyrja sig hvort það sé tími fyrir endurmat sem tekur með í reikninginn þessar ófyrirséðu víðari samfélagslegu afleiðingar sem póstmódernisminn kann að hafa haft – ekki síst tengsl hans (ef ein- hver) við tímabilið sem almennt er kennt við „eftir-sannleika“ (e. post-truth). Þá á ég ekki við að þeir heimspekingar sem kenndir hafa verið við „póstmódernisma“ beri einhvers konar ábyrgð á stöðunni í dag. En uppgjör við póstmódernismann í dag hlýtur þó að taka þessar afleiðingar og umræður með í reikninginn. Björn sjálfur verður þó aldrei sakaður um skeytingarleysi um sannleikann, en það hugtak er einmitt umfjöllunarefni næstu greinar bókarinnar, „Stríðið um sannleikann“. Í stuttu máli ræðir Björn þar, með hjálp Pontíusar Pílatusar og Jónasar Hallgrímssonar, hinn marg- víslega skilning sem hægt er að leggja í sannleika, hvort sannleikurinn skipti máli og af hverju. Björn bendir á að okk- ur hættir til að líta á sannleikann sem mun einfaldara fyrirbæri en hann er í raun og veru. Sannleikurinn er sjaldnast auðveldlega fenginn, hvað þá að hann sé hægt að fanga í eitt skipti fyrir öll, eitthvað sem okkur hættir til að gleyma. Hann er öllu heldur eitthvað sem krefst „opinnar og skapandi umræðu“, en slíkt er ekki einungis sjálfsverunni mikilvægt, heldur ekkert síður lýðræðislegri ákvarð- anatöku og samfélaginu öllu (bls. 44). En áhersla Björns, hér og í öðrum ritum sínum, á mikilvægi samræðu og íhugun- ar, að varast fljótfærni og illa grundaðar ákvarðanir og hugmyndir, er svo sannar- lega mikilvæg áhersla sem á þó undir högg að sækja á ýmsum sviðum í dag. Þar eru auðvitað samskiptamiðlarnir eitt þekktasta dæmið. Í næsta hluta bókarinnar er heim- spekin sjálf umfjöllunarefnið. Í greininni „Heimspeki við aldahvörf“ fer Björn yfir sögu heimspekinnar og ræðir ýmis vel valin álitamál innan hennar í þeim til- gangi að reyna að varpa ljósi á framlag heimspekinnar og hvað hún hefur fram að færa í nútímanum. Í sem allra stystu máli kemst Björn að þeirri niðurstöðu að hún gegni lykilhlutverki í dag. Þá sérstaklega í því hvernig hún er orðin mun útbreiddari og þ.a.l. einnig fjölbreyttari eftir hinar mörgu réttinda- og frelsisbaráttur og byltingar áður undirokaðra og kúgaðra hópa fólks. Hún er ekki lengur í höndum Hugur 2018meðoverride.indd 129 24-Jul-18 12:21:28
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.