Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2020, Blaðsíða 88
„Ó SYND, Ó SYNDIN ARGA, [...]“
93
ferðarmest og eru dæmi um hana mýmörg. Þar gætir einnig dulhyggju sem
spannst kringum hið heilaga hjarta Krists.20 Brúðardulhyggju bregður þó
einnig fyrir en samt í minna mæli en samtíminn gat gefið tilefni til.21
Íhugun í anda dulhyggju kemur ekki síst fram í því samtali sem er áber-
andi einkenni í Passíusálmunum og fer fram í innri samræðu skáldsins við
sjálf sitt eða sál sem og í samtali þess við lesandann og guðdóminn.22 Þá er
athyglisvert að Hallgrímur persónugerir jafnvel syndina, ávarpar hana og
ásakar:
Ó synd, ó syndin arga,
hvað illt kemur af þér?
Ó, hversu meinsemd marga
má drottinn líða hér?
Þitt gjald allt þetta er.
Blindað hold þig ei þekkti
þegar þín flærð mig blekkti.
Jesús miskunni mér.23
Passíusálmarnir og þjóðin
Passíusálmarnir hafa þegar allt er talið komið út í yfir 90 prentuðum út-
gáfum. Frá 1671 og fram á 19. öld voru þeir prentaðir í sálmabókum kirkj-
unnar. Sýnir hvort tveggja að þeir hafa frá upphafi notið viðurkenningar
kirkjustjórnarinnar. Auk þess hlutu þeir mikla dreifingu í handritum sem
20 Með píslardulhyggju er átt við íhugun sem beinist að sárum og benjum Krists og er
iðkuð til að sækja huggun og fró í þjáningu hans. Sjá til dæmis Ps 37:8. Hallgrímur
Pétursson, Passíusálmar, bls. 158. Sjá og „Gegnum Jesú helgast hjarta / í himininn
upp ég líta má […].“ Ps 48:14. Sama heimild, bls. 192. Mörður Árnason, „Jesú helg-
ast hjarta“, Passíusálmarnir, útgáfa og leiðsögn Mörður Árnason, Reykjavík: Crymo-
gea, 2015, bls. 585.
21 Í brúðardulhyggju er líkingamáli brúðkaups og hjónabands beitt og Kristi til dæmis
lýst sem brúðguma hinnar trúuðu sálar. Sjá Ps 42:12: „Heyr þú, sál mín, / talar til
þín / tryggða brúðguminn góði […]. Hallgrímur Pétursson, Passíusálmar, bls. 173.
Mörður Árnason, „Dulúð og íhugun“, bls. 511. Mörður Árnason, „Eintal sálarinn-
ar“, bls. 33.
22 Margrét Eggertsdóttir, Barokkmeistarinn, bls. 355–359; Mörður Árnason, „Dulúð
og íhugun“, bls. 511; Mörður Árnason, „Eintal sálarinnar“, bls. 33–35; Mörður
Árnason, „þegar þú gengur …“, Passíusálmarnir, útgáfa og leiðsögn Mörður Árna-
son, Reykjavík: Crymogea, 2015, bls. 313–315.
23 Ps 25:8. Hallgrímur Pétursson, Passíusálmar, bls. 122.