Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2020, Blaðsíða 184
HUGSaNIR
189
til þess að vera heima hjá sér, færi hann ekki þaðan út til þess að sigla út á sjó
eða hefja umsátur; hann yrði sér ekki út um embætti í hernum fyrir fúlgur
fjár nema vegna þess að honum þætti óbærilegt að vera um kyrrt í borginni;
maður gefur sig ekki á tal við aðra og leitar ekki að skemmtun í leikjum nema
maður uni sér ekki heima við.
en þegar ég gaumgæfði þetta nánar og eftir að hafa fundið uppsprettu
allrar okkar óhamingju vildi ég finna hvað olli henni og ég komst að því að
það er ein raunveruleg ástæða, sem felst í náttúrulegri ógæfu dauðlegs og
veikgeðja hlutskiptis okkar, og hún er svo aumkunarverð að ekkert getur
sefað okkur þegar við gefum því nánari gætur.
Það er sama hvaða hlutskipti við ímyndum okkur, með öllum þeim auði
sem því gæti fylgt, þá er konungdæmið æðst og fegurst þeirra allra; ekki síst
þegar við ímyndum okkur öll þau fríðindi sem því fylgja. ef konungurinn
hefur ekkert sér til skemmtunar og ef hann hefur næði til þess að hugsa um
og velta því fyrir sér hvað hann er, mun þessi munarblíða sæla ekki veita
honum neina vörn; ekkert getur hindrað hann í að hugsa um uppreisnir sem
gætu ógnað honum, um dauða og sjúkdóma sem ekki er hægt að forðast,
þannig að ef hann er án þess sem kallað má skemmtun er hann vansæll, og
vansælli en auðmjúkasti þegn hans sem leikur sér og skemmtir. H.
Það er ástæða þess að peningaspil og félagsskapur kvenna, stríðsrekstur
og háttsett embætti eru svo eftirsótt. Það er ekki vegna þess að þar sé að
finna hamingju eða vegna þess að maður ímyndi sér að raunveruleg sæla sé í
því fólgin að eiga peninga sem hægt er að vinna í spilum, eða með því að elta
hlaupandi héra11a; maður tæki ekki við honum ef hann væri gefins. Það er
ekki þessi átakalitla og friðsæla tilvera, sem fær okkur til að hugsa um okkar
auma hlutskipti, sem við sækjumst eftir, eða hættan sem felst í stríðsrekstri,
eða erfiðið sem fylgir vinnunni; það er kliðurinn og ónæðið sem kemur í veg
fyrir að við hugsum um hlutskipti okkar og sem styttir okkur stundir.
Það er af þeim sökum að menn eru svo hrifnir af hávaða og látum. Það
er af þeim sökum að fangelsi er svo mikið kvalræði. Það er af þeim sökum
að ánægja einverunnar er óskiljanleg. Og að lokum þá er mesti gleðigjafinn
í hlutskipti konunga sá að við reynum án afláts að skemmta þeim og bjóða
þeim upp á alls kyns ánægjuefni.12b
Svona hafa mennirnir fundið upp á ýmsu til að gera sig hamingjusama.
11 a Það er ástæða þess að við finnum meiri ánægju í því að elta dýrið en að ná því.
12 b Konungurinn er umkringdur fólki sem hugsar um það eitt að skemmta honum og
koma í veg fyrir að hann leiði hugann að sjálfum sér. Vegna þess að hann er vansæll,
þótt hann sé konungur, ef hann leiðir hugann að því.