Úrval - 01.02.1944, Side 91

Úrval - 01.02.1944, Side 91
IBN SAUD, ARABlUKONUNGUR 89 haft tal af honum, og hann tek- ur daglega á móti f jölda þeirra í hásætissal hallar sinnar í Riad. Þessi hásætissalur lítur út eins og hann væri klipptur úr ævintýrabók, nema að á borði við hlið hásætisins er sími og rafmagnshnappur. f hliðarher- bergi til hægri við hásætið sitja hinir helztu hirðmenn og nokkr- ir af sonum konungs og rabba saman, reiðubúnir ef konungur- inn þarfnast þeirra. Ibn Saud er nú 63 ára gamall og er farinn að vera nokkuð þungur til, gangs, mikið til sökum gamalla sverð- og kúlnasára, sem hann hefir hlotið í hinum mörgu bar- dögum sínum, en þrátt fyrir það' iítur hann unglega út. Fram- koman er ákveðin og fyrirmann- leg og röddin djúp og hljóm- mikil. Hið mikla afrek hans, að sam- eina aftur Arabíu eftir 1300 ár — síðan á dögum Múhammeds —7 skipar honum í fremstu röð mikilmenna heimsins. Sökum þess að báðar hinar helgu borg- ir, Mekka og Medina, teljast til ríkis hans, er hann ekki aðeins æðsti yfirmaður hinna 30 mill- jón Araba í nálægum Austur- löndum, heldur einnig æðsti yf- irmaður 220 milljón Múhamm- edstrúarmanna, sem dreifðir eru um alla jörðina. Af ýmsum ástæðum er Saudi- Arabía algerlega lokað land kristnum mönnum. Innan við eitt himdrað kristnir menn hafa heimsótt eyðimerkurvirki lands- ins. En lega Arabíu, sem ræður yfir tveimur af þremur leiðum til nálægra Austurlanda, gerir hana að mikilvægum lið fyrir hinar sameinuðu þjóðir, til þess að koma birgðum til Rússlands, Indlands og nálægra Austur- landa, þar að auki eru Bahrein- eyjarnar í persneska flóanum mikilvæg oliubirgðastöð fyrir Bandamenn. í þessari heimsstyrjöld, eins og í hinni fyrri, hefir Ibn Saud haldið vinsamlegu hlutleysi gagnvart Bandamönnum. Ef Ibn Saud hefði, áður en styrj- öldin brauzt út, hallazt að Möndulveldunum, sem létu einskis ófreistað til þess að gera hann sér handgenginn, hefði orðið örðugt, ef ekki ómögulegt, að hrekja ítali burt úr Abess- jníu og Eritreu. Ef Ibn Saud hefði hikað fyrir einu ári síðan, þegar uppreisnin í Irak brauzt út, hefði það getað haft hinar alvarlegustu afleiðingar í för með sér fyrir Bandamenn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.