Úrval - 01.06.1948, Síða 23
Málaralist nútímans er á villigötum.
Úr „Horizon“,
eftir Herbert Rea<l.
júG álít, að leggja beri niður
alla listaskóla. Málaralistin
er andvana list, eins og hún er
stunduð nú.
Listaskólarnir eru ekki að-
eins að halda við úreltri siðleifð,
Herbert Read er kunnur enskur
gag-nrýnandi og skáld og veitir for-
stöðu safni nútímalistar í London
(Museum of Modern Art). Hann
hefur skrifað tvær bækur um listir:
The Meaning of Art og Art and
Society. Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að málaralist nútímans er
mjög umdeild. Grein þessa mun mega
telja innlegg í því deilumáli. Því
miður hafði Úrval ekki undir hönd-
um frumútgáfu greinarinnar í Hori-
zon, heldur aðeins ágrip af henni,
sem birtist í tímaritinu Magazine
Digest, en það ber með sér, að all-
miklu af röksemdafærslu höfundar
muni vera sleppt. Hrval hefur áður
birt tvær greinar um nútímalist:
„Það er tízka -— en er það list“ S 1.
hefti 4. árg. og „Myndir barna og
áhrif þeirra á nútímalist" i 1. hefti
þessa árgangs.
þeir eru að tæla þúsundir ungra
manna og kvenna inn á verk-
svið þar sem þeirra bíður aðeins
fátækt, vonbrigði og örvænting.
Þetta er harður dómur og
mun ég því reyna að finna orð-
um mínum stað. Trönumálun
— málun mynda á ferhyrndan
léreftsflöt — hefur glatað, eða
er óðum að glata, allri fjárhags-
legri og félagslegri réttlætingu.
Hinir auðugu velgerðarmenn
listamanna, sem báru málara-
listina fram til fulls blóma á
miðöldum — prinsar, hertogar
og prelátar kirkjunnar — eru
ekki lengur á meðal okkar. Dán-
arklukkum slíkra auðmanna,
hefur verið hringt, svo er
skattalöggjöfinni fyrir að
þakka.
Og jafnvel þó að peningarnir
væru fyrir hendi, er engin
skynsemi að ætlast til þess, að
þeir séu lagðir í meinta lista-
dýrgripi, út frá því sjónarmiði,