Úrval - 01.06.1948, Blaðsíða 81
LlFSLEIT OKKAR
79
hug, eins og við hefðum orðið
fyrir óvæntu ranglæti, sem við
hefðum alls ekki átt skilið.
Stundum hefur það komið fyrir,
að menn, sem ekki hafa misst
neitt nema peninga sína, hafa
kastað sér út um skrifstofu-
gluggann sinn og framið sjáifs-
morð.
En öryggið er og hefur alltaf
verið blekking. Lífið er, eins og
forfeður okkar gerðu sér grein
fyrir, annaðhvort stórfenglegt
ævintýri eða hringrás vaxtar og
hrörnunar. Eða eins og einn
vinur minn sagði: „Ég hef verið
settur hér til þess að leysa
vandamál. Ef ég hefði engin
vandamál að glíma við, þá
myndi ég álíta, að ég væri ekki
talinn verður að leysa þau.“
Sem betur fer eigum við enn
nóg af vandamálum að fást við,
og hætturnar blasa allstaðar við
augum. Getum við endurheimt
djörfungina og ævintýraþrána,
sem gaf forfeðrum okkar þor
til að berjast til sigurs, hvað
sem það kostaði, og þola ósigur
án þess að skipta skapi? Hvað
getum við lært af lífinu, sem
getur styrkt okkur í hinum nýju
hættum og mannraunum, sem
framundan eru ?
Það, sem er enn meiri ógnun
en atómsprengjan, er á annan
bóginn sú skoðun, að veraldlegir
hlutir geti fullnægt okkur og
veitt okkur sálarfrið, og á hinn
bóginn sá lífsótti og hræðsla við
að taka á sig ábyrgð, sem svo
margir eru haldnir af; trúin á
það, að fjöldasamtök geti bætt
upp vanmátt einstaklingsins
gagnvart hinu takmarkalausa
og fjandsamlega umhverfi, sem
við lifum í.
Ég man alltaf eftir ungum
nazista, sem sagði við mig
skömmu fyrir stríðið: „Við
Þjóðverjar erum svo hamingju-
samir. Við erum lausir við
frelsið.“ Hann átti við það, að
hann þurfti ekki lengur að taka
sínar eigin ákvarðanir eða
hugsa fyrir sig. Að öllum lík-
indum hefur hann fyrir löngu
orðið að gjalda þessa blekkingu
dýru verði.
Ég man líka eftir ungum,
kommúnistiskum leiðsögumanni
í Rússlandi, sem sagði við mig
hreykinn: „Það skiftir ekki
máli, þó að við verðum að þjást
núna. Sá dagur kemur, að hver
einasti Rússi á bíl í bílskúrnum
sínum, útvarpstæki á heimili
sínu og allan þannmat, semhann
getur torgað. Og hann þarf ekki
að vinna nema tvær stundir á