Úrval - 01.06.1948, Blaðsíða 67
FLUGAFREK LINDBERGHS
65
Nú var ekki lengur þörf á að
leika skollaleik. En svefninn
gerðist ásækinn. Til að hrista
hann af sér fór hann að lesa á
mælitæki sín og reikna út stefn-
una. Hann tók dofna fæturna
af stýrinu og stappaði í gólfið.
Samstundis breytti flugvélin
um stefnu. Hann hristi höfuðið
til beggja hliða — það var ekki
nóg pláss til að hrista það upp
og niður. Hann sló sig bylmings-
högg utanundir — hann barði
út í loftið eins og hnefaleikari
að æfingu, og gerði yfirleitt allt,
sem hann gat til að halda sér
vakandi.
O
Sólin var komin nokkuð hátt
á Ioft, þegar fyrst tók að greið-
ast úr skýjunum fyrir neðan.
Fáum mínútum síðar grillti í
sjóinn gegnum gat. Andi St.
Louis steypti sér eins og máfur
gegnum opið, niður í nokkur
hundruð feta hæð yfir hvít-
fexta öldutoppana, sem bárust
hægt — úr norðvestri! Það var
leiði! Ef til vill var það þá, sem
Lindbergh beit í brauðsneið —
það eina sem hann borðaði alla
leiðina.
En forsjónin gat ekki unnt
honum þessa fagnaðarefnis
iengi; skýin luktust um hann
aftur og í tvo tíma varð hann
að fljúga blindflug.
Lindbergh hafðí ekki að-
stöðu til að vita, að Andi St.
Louis var á allra vörum og í
stórfyrirsögnum allra heims-
blaðanna. Kvíðinn læsti sig um
hjörtu hlustendanna, þegar
fréttaþulirnir endurtóku með
stuttu millibili allan laugar-
daginn: „Enn hefur ekkert
frétzt . . . “
Þegar líða tók að kvöldi, kom
nýtt áhyggjuefni. Síðan Lind-
bergh fór frá New York voru
nú liðnir 27 tímar. Ef hann væri
á réttri leið, hlaut hann að fara
að sjá land. Og nú hófst eld-
raunin, sem goðin leggja á
herðar öllum þeim, er fest hafa
hamingjuvagn sinn aftan í of-
bjarta stjörnu: Lindbergh tók
að sjá hillingar. ,,Ótal strand-
lengjur birtust, með fjöllum,
flóum og trjám, sem báru við
himin.“ Fyrirheitna landið heils-
aði hinum þreytta farmanni úr
öllum áttum — nema þeirri
réttu.
Þegar hér var komið, hafði
Lindbergh vakað í tvo sólar-
hringa. Gluggapóstar höfðu
verið teknir úr til að betur sæist
út, og Lindbergh trúir því að það
hafi bjargað lífi sínu. Með því