Úrval - 01.06.1948, Blaðsíða 56
54
TJRVAL
inni, virtist ágalli minn ekki
lengur vera eins þýðingarmikið
atriði og fyrr.
En mér tókst ekki að losna
við stamið og þær afleiðingar,
sem það hafði fyrir líf mitt. Ég
missti af góðri stöðu í útgáfu-
fyrirtæki einu, af því að þess
var krafizt, að ég ræddi daglega
við rithöfunda og stjórnarmenn
fyrirtækisins. Ég missti oftar af
góðri atvinnu af sömu ástæðu.
Ég fór að æfa mig í að tala
með syngjandi rödd og eftir
hljóðfalli. Það var eins með mig
og miljónir þjáningarbræðra
minna: erfiðleikarnir minnka
við rímuð Ijóð og hverfa alger-
lega í söng. Mér tókst að segja
langa setningu hiklaust og lesa
kvæði án þess að reka í vörð-
urnar.
En þegar út í daglega lífið
kom, fór á sömu leið og
áður. Öttinn náði aftur tökum
á mér. Ég hikstaði á fyrsta orð-
inu, þvínæst öðru og síðan
þriðja. Ég stamaði eins og fyrr.
Næst leitaði ég ráða hjá lækn-
um. Einn sagði mér, að ég
skyldi ekki hafa áhyggjur af
staminu, það mundi „eldast af
mér.“ Geðlæknir lét mig fá
róandi lyf og ráðlagði konu
minni að „telja í mig kjark,“
þegar ég fengi þunglyndisköst.
Allt var árangurslaust.
Dag nokkurn ákvað ég, í ör-
væntingu minni, að athuga
ástand Josephs P. Blank í
alvöru, í fyrsta skipti í 25 ára
baráttu, og að hugsa um ágalla
minn. Ég sagði við sjálfan mig:
Hverjum er þetta að kenna ? Ég
varð að viðurkenna, að hvorki
kona mín, vinir mínir né kenn-
arar áttu sökina á því — mér
einum var um að kenna. Og ég
varð að sigrast á þessu böli
mínu einn eða lúta því alla ævi.
1 öðru lagi: Hver var orsök
þess, að ég stamaði ? Ég stamaði
aldrei þegar ég var einn; það
kom aðeins fyrir í návist ann-
arra.
Athyglin, sem ég varð fyrir
og umhyggja þeirra, sem nálægt
mér voru, hafði skapað andsvar,
sem birtist í hljóðstíflu eða
stami. Ég var hræddur við að
stama, hræddur við tilfinningar,
sem því voru samfara.
I þriðja lagi: hvenar var ég
„góður“ og hvenær „slæmur“?
Mér gekk bezt að tala á morgn-
ana, þegar ég var óþreyttur,
andlega og líkamlega. Ég stam-
aði mest, þegar ég var þreyttur
eða sljór. Ég sannfærði sjálfan
mig um eftirfarandi stað-