Úrval - 01.06.1948, Blaðsíða 55
AÐ KENNA SJÁLFUM SER AÐ TALA
53
allra minnst og helzt ekki önnur
orð en þau, sem byrjuðu á sér-
hljóða, því að það var ekki eins
erfitt. Ef þessar ráðstafanir
nægðu ekki, hristi ég höfuðið
til þess að gefa til kynna, að ég
væri ófróður um málið. Auk
þess komst ég að raun um, að
mér veittist auðveldara að segja
erfið orð, ef ég fylgdi þeim eftir
með snöggri líkamshreyfingu.
Ef ég spyrnti t.d. harkalega í
stólfót, varð það oft til þess,
að erfitt orð hrökk út úr mér.
Oft hló fólk að brettunum í and-
liti mínu.
Á uppvaxtarárunum þurfa
unglingar ekki sízt á sjálfs-
trausti að halda. Hvenær, sem
nýtt verkefni varð á vegi mín-
um, fór ég að velta fyrir mér
talmöguleikanum í sambandi við
það. Hvað varð ég að segja?
Hve margt fólk mundi hlusta á
mig? Þegar ég var kominn á
þann aldur, er piltar fara að
sækja samkvæmislífið, sat ég
liðlanga dagana einn og las upp-
hátt.
Ég varð fyrir miklu áfalli,
þegar ég var 18 ára. Skömmu
fyrir afmæli móður minnar,
heyrði ég hana minnast á
blómaskál, sem hún hafði séð í
verzlun og langað að eignast.
Ég ákvað að kaupa skálina og
gefa henni. En þegar ég kom inn
í verzlunina, sem er ein hin
stærsta í New York, gekk ég
deild úr deild, og þorði ekki að
spyrja, hvar skálin væri seld.
Þegar verzluninni var lokað,
gafst ég upp.
I afmælishófinu tók móðir
mín upp gjafir frá bróður mín-
um og systur, en þegar hún sá,
að ég hafði ekki gefið henni
annað en fimm dollara seðil,
varð hún fyrir vonbrigðum. „Ég
vissi ekki, hvað ég átti að kaupa
handa þér,“ stamaði ég.
Þegar ég fór að hátta um
kvöldið, sór ég þess dýran eið að
hætta að stama. En morguninn
eftir stóð fyrsta orðið í mér.
Ég kunni vel við mig í háskól-
anum, af því að kennslan fór að
mestu fram í fyrirlestrum. Ég
talaði eins lítið og ég gat. En
ég hafði alltaf beyg af mínu
eigin nafni, Joseph P. Blank,
því að það er fullt af samhljóð-
um. —
Þegar ég náði þroskaaldri,
hættu krakkarnir að stríða mér
og fullorðna fólkið hætti líka að
vera eins umhyggjusamt. Mér
veittist heldur hægara að tala,
og síðar, þegar ég losnaði úr
herþjónustu að styrjöldinni lok-