Úrval - 01.06.1948, Blaðsíða 62
60
ÍTRVAL
gangslaust að reyna að leyna
því.“
Að svo mæltu lyfti hann upp
kufli sínum, hljóp inn í mör-
gæsahópinn, sparkaði steggj-
unum til hliðar, tróð á þeim og
ruddist áfram þangað til hann
hafði náð dóttur Alca, sem hann
greip í fang sér og bar inn í
helli, er sjórinn hafði holað
í klöppina.
Mörgæsasteggjunum fannst
sem sólin hefði slokknað. Og
hinn .heilagi Mael vissi, að djöf-
ullinn hafði tekið á sig gerfi
munksins Magis, svo að hann
gæti gefið dætrum Alca klæði.
Hugur hans var ugginn og sál
hans mædd. Og um leið og hann
gekk hægum skrefum heim að
einsetumannskofa sínum, sá
hann litlar sex og sjö ára gaml-
ar mörgæsir reyra þangblöðkum
um mitti sér og ganga eftir
ströndinni til að vita, hvort
nokkur veitti þeim eftirför.
Malbikstjörnin.
Fyrir 350 árum fann Sir Walter Raleigh hina kunnu mal-
bikstjörn á eynni Trinidad undan ströndum Venezuela í SuSur-
Ameriku, og enn í dag er vísindamönnum þessi tjöm óskiljan-
legt undmnarefni. Hún hefur lagt til malbik í vegi svo þúsund-
um km. skiptir í Bandaríkjunum, ríkjum Suður-Ameríku, lönd-
um Evrópu, Ástralíu, Egyptalandi, Indlandi og Japan.
Þegar komið er á tjamarbakkann, mætir auganu sléttur,
dökkgrár flötur 45 þúsund fermetra að stærð. Allt í kring er
fjöruborð eins og við venjulegt stöðuvatn. Malbikið er svo
þykkt, að ganga má á því þurram fótum, og mjóspora jám-
braut hefur verið lögð yfir það. Nýleg rannsókn leiddi í ljós,
að tjörnin er 85 metra djúp í miðjunni.
Malbikið hagar sér eins og mjög hægfara kviksandur. Holur,
sem grafnar eru í það, fyllast innan sólarhrings. Malbikið er
hoggið í bita með spöðum og hreinsað í verksmiðju áður en
það er selt úr landi. Yfirborð tjamarinnar hefur ekki lækkað
nema um tæpa sex metra á hálfri öld, þó að á þeim tíma hafi
verið tekið úr henni að minnsta kosti 5 miljónir lesta af malbiki.
Vísindamenn eru enn alls ófróðir um, hvemig tjöm þessi
hefur orðið til.
•— Magazine Digest.