Úrval - 01.06.1948, Page 42

Úrval - 01.06.1948, Page 42
40 'ÚRVAL eins eitt herbergi, 4x4,5 metr- ar að flatarmáli eða þar um bil og mannhæð undir loft. Veggirnir, sem eru að minnsta kosti 45 sm þykkir, eru úr torfi og grjóti. Að innan eru þeir klæddir borðum eða skinni. f fyrsta skipti, sem maður kemur inn í svona hús, verður manni einkum starsýnt á veggina, sem eru í skærum litum og með al- þjóðlegu svipmóti, því að á þá eru límd dagblöð og annar blaðakostur, ýmist til skrauts eða til að slétta ójöfnur. Þar getur að líta auglýsingar um lyf, tízkukjóla, bíla, hægðalyf, whisky, skartgripi og margt annað, sem ekki er mikil þörf fyrir í Thule. Auglýsingarnar eru úr enskum og amerískum tímaritum, sem leiðangursmenn af ýmsu tagi hafa skilið eftir. Húsgögnin eru: langt trérúm, þakið skinni, tveir eða þrír kassar, sem geyma lausamuni fjölskyldunnar, lítil hiila fyrir lýsislampann, kaffikvörn, vekj- araklukka og saumaáhöld. Á krók í loftinu hangir hluti úr rostung, sem er að þorna, og undir honum stór pottur. Meðan ég skoða sjúklinginn, sem aldrei er órólegur eða feim- inn, og fylgir alltaf fyrirmælmn mínum samvizkusamlega, horfa hinir íbúar hússins á með at- hygli. Þegar skoðuninni er lokið, fæ ég, án þess að biðja um, þvottaskál til að þvo mér úr og hreint stykki úr mjölpoka til að þurrka mér á. Svo hefjast sam- ræður. Venjulega spyr fólkið, hvort nakorsaq (læknirinn) kæri sig um svo lítinn kjötbita — og hann þakkar kærlega fyrir, því hann vill eiga vingott við fólkið, og hérna, eins og allstaðar annarsstaðar í heim- inum, er fátt betur til þess fallið en að eta saman. En hvernig er heilsufarið í svona íbúðum? Flest eru húsin hrein, sum tandurhrein, og að- eins örfá verulega óhrein — að öllu samanlögðu líkt og heima í Danmörku. En ekki má gleyma erfiðleikunum á að útvega sápu og vatn, eða hve margir búa í hverju húsi. Á sumrin flytja Eskimóarnir í Thule í skinn- tjöld, og er sá siður mikilvægur frá sjónarmiði þrifnaðar i og heilbrigði, því að á þann hátt nýtur fólkið betur lofts og sólar. Þá eru hurðir og gluggar teknir úr húsunum, og stundum jafnvel þökin, svo að sól og loft geti hreinsað húsin fyrir veturinn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.