Úrval - 01.12.1956, Blaðsíða 45
Hugleiðingar um bókina „Og loginn mun ei
brenna yður. Itveðjubréf frá dauðadæmdum
mönnum úr andspyrnuhreyfingunni í Evrópu".
Ðauðinn og lífsviljinn.
Grein úr „Vi“,
eftir Kurt Friedlánder.
Úrval birti í i. hefti í fyrra formála Tliomasar Mann að bók
þeirri, sem hér er gerð að umtálsefni. — Þótt myrkur dauðans grúfi
yfir siðum þessarar bókar, lýsir hún sem viti i þeim cegiskugga, scm
blóðidrifið vopnavald varpar nú yfir heiminn. Því að þessi bréf eru
lýsandi vitnisburður um þann sannleik, sem valdamönnum virðist
einna torncemastur, að ,,í styrjöld munu þeir einir miður hafa er trúa
stáli.“ Og þó felst í þessum orðum skáldsins öll von mannkynsins.
AF öllu því, sem skilur mann-
inn frá dýrunum, varðar
mestu sú staðreynd, að hann
einn veit, að hann verður að
deyja. Þessi vitneskja er for-
réttindi, sem skaparinn hefur
gefið oss. Oft getur hún verið
huggun, en ósjaldan er hún
þung byrði. Öll trúarbrögð og
heimspeki eiga strangt tekið
rætur í þessari vitneskju, og
viðbrögð vor andspænis yfirvof-
andi dauða er bezti prófsteinn-
inn á siðferðisþrek vort. Það
er einnig augljóst, að bók, sem
geymir síðustu hugsanir nokkur
hundruð manna af ólíkasta tagi
og uppruna andspænis hinum
óumflýjanlegu endalokum, hlýt-
ur að vera ómetanlegt heimild-
arrit, þegar leita skal vitneskju
um mannssálina, já, og einnig
um menningu samtímans. Á
normal tímum er tæpast hægt
að setja saman heimildarrit af
þessu tagi, en samtíð vor hef-
ur séð svo um, að ekki skorti
nauðsynlegt efni.
Bókaútgáfan Steinberg í
Ziirich hefur gefið út þykka
bók, sem ber heitið ,,0g loginn
mun ei brenna yður. Kveðju-
bréf frá dauðadæmdum mönnum
úr andspyrnuhreyfingunni í
Evrópu“, með formála eftir
Thomas Mann. I bókinni eru
316 bréf frá hetjum andspyrnu-
hreyfingarinnar, sem allar létu
lífið á höggstokknum, í gálgan-
um, gasklefanum eða frammi
fyrir aftökusveitum valdhaf-
anna. Varla nokkur bók úr því
mikla safni bóka, sem út hefur
komið um mótspyrnuna gegn