Úrval - 01.12.1956, Blaðsíða 89
ÞROUN HEILANS OG STARFSEMI HANS
87
hækki upp í allt að helming eft-
ir því sem tómstundum manns-
ins fjölgar og hann lærir að
varðveita hina náttúrlegu for-
vitni, sem honum er meðfædd.
Kennslu er hægt að nota til
þess að bæta á skömmum tíma
viðbrögð sérhvers heilbrigðs
manns. Mannfræðingurinn
Margaret Mead heimsótti Man-
usey í Kyrrahafi árið 1928 og
aftur 1953. í fyrra skiptið voru
íbúarnir fáfróðir villimenn, sem
lifðu við steinaldarmenningu.
Á stríðsárunum höfðu amerísk-
ir hermenn bækistöðvar á eynni,
og af kynnum við þá lærðu eyj-
arskeggjar ýmsa nýja siði, urðu
löghlýðnari og lögðu niður
þrætur. Flesta þjóðflokka er
hægt að siðmennta þannig á
skömmum tíma.
Sennilega hefur orðið lítil
breyting til hins betra eða
verra á greind mannsins á und-
anförnum 5000 árum. Nokkrar
árþúsundir eru of skammur
tími til þess að stökkbreytingar
og náttúruval geti miklu um
þokað til bóta. En félagsleg
þróun er nú tiltölulega mikil-
vægari fyrir heilann en stökk-
breytingar. Sambönd milli
skiptistöðva batna, því meir sern
id kemst undir stjórn, hið æðra
sjálf verður sterkara, og lang-
anir, skynsemi og samvizka
samlagast betur.
Manninum tekst því betur að
nýta heila sinn, því ljósari sem
honum eru þau takmörk, sem
hugsun hans er háð. Hugmynd-
ir vorar hafa tilhneigingu til að
safnast í fastmótaða, lokaða
hringi; þegar einn slíkur hring-
ur lokast, finnst oss sem vér
höfum nú loks höndlað sann-
leikann, vér erum ánægð, sjálf-
umglöð og reiðubúin að verja
skoðanir vorar fyrir hverjum
sem er. Hugur vor er lokaður
gagnvart öllu sem viðkemur
slíkum sjálfmótuðum hugmynd-
um. Eitt af markmiðum mennt-
unar ætti að vera að stjaka við
þessum mynztrum hugans þann-
ig að smáhringir opnist og
tengist saman í stærri hringi,
sem spenna yfir víðara svið.
Þegar hinir lokuðu hringir and-
legs makræðis opnast og tengj-
ast að nýju í stærri, hringi
skýrist vitund vor og greind, líf
vort öðlast meiri fylling, og vér
verðum betur færir um að
bregðast rétt við umhverfi voru.
Heilastraumar mannsins taka
miklum framförum við notkun
og æfingu. Að hugsa á tiltek-
inn hátt eykur blóðstreymi og
flytur meiri næringu til þeirra
skiptistöðva, sem hlut eiga að
máli. Nám er í því fólgið að
setja aftur og aftur upp sömu
straumskiptimynztrin, að þjálfa
tiltekna strauma og skiptistöðv-
ar í því að vinna saman. Hugur-
inn þarfnast þjálfunar og ögun-
ar engu síður en þess að hann
sé opnaður.
Skyldunám áður fyrr, svo
sem latínu-og grískunám, ruddi
braut margvíslegum nýjum hug-
tengslum. Vísindi nútímans