Úrval - 01.12.1956, Blaðsíða 66
64
ÚRVAL
ancli. Þegar Foo þurfti að fara
í meiriháttar samkvæmi, var
þriðja konan ávallt í fylgd með
honum. Hún ól honum eitt barn,
en hafnaði eftir það allri sam-
vinnu við hann í þeim efnum.
Þá var það að fyrsta frúin
kom með hina furðulegu uppá-
stungu sína.
Þegar Foo varð sextugur,
sagði hún við hann:
„Foo, þú hefur verið góður
maður, ágætur eiginmaður og
bezti faðir. Nú fer aldurinn að
færast yfir þig og þú getur
ekki notið lífsins lengi úr þessu.
Ég vil að þú náir þér í unga og
fjöruga stúlku og gerir hana
að fjórðu konunni þinni.“
Foo þótti nóg um.
„Við Kínverjar, sem játum
Búddatrú,“ sagði hann við mig,
„lítum á giftingu sem skyldu-
kvöð, til þess ætlaða að veita
eins mörgum konum öryggi og
við höfum efni á og jafnframt
til þess að tryggja viðhald ætt-
anna með eins miklum barn-
eignum og unnt er. Gifting get-
ur líka veitt tækifæri til auk-
inna metorða og það er vottur
um góð efni, þegar menn eiga
margar konur. Það er mjög
sjaldgæft, að við giftum okk-
ur af ást — og það kemur
bókstaflega aldrei fyrir, að við
giftumst af holdlegri fýsn.
Þegar ég sagði fyrstu konu
minni þetta, svaraði hún: „Þá
skal ég leyfa þér að koma með
hjákonu á heimilið, eða marg-
ar, ef þig langar til“.“
Foo hristi höfuðið. „Auð-
vitað get ég ekki gert það. Að
vísu hafa auðugir Kínverjar
hjákonur og sumir eins konar
kvennabúr. En ég tel slíkt at-
hæfi ósiðsamlegt.“
Múhameðstrúarmenn eru enn
meira gefnir fyrir fjölkvæni
en Búddatrúarmenn. Kenningar
Múhameðs leyfa f jölkvæni, enda
þótt fjöldi eiginkvennanna sé
takmarkaður. Enginn má eiga
fleiri en fjórar konur.
„Ef þú verður hrifinn af
konum,“ sagði Múhameð,
„skaltu einungis kvænast tveim
þeirra, þrem, eða fjórum; en ef
þú óttast að þú getir ekki ann-
ast þær sómasamlega, skaltu
aðeins kvænast einni.“
Austurlandamaðurinn hagar
sér samkvæmt þessu boðorði.
Hafi hann ekki efni á að eiga
margar konur, kvænist hann
þeim ekki.
Iíommúnistastjórnin í Kína
hefur lagt bann við fjölkvæni.
í Japan er fjölkvæni einnig
bannað. En víða í Austurlönd-
um, þar sem mönnum er bann-
að að eiga fleiri en eina konu,
taka menn sér hjákonur. Sums-
staðar hafa auðugir menn bæði
eiginkonur og hjákonur.
Foo sagði mér brosandi frá
því, hvernig hann hafði náð í
fjórðu konuna.
,,Ég fór eitt kvöld í sam-
kvæmi með stéttarbræðrum
mínum og hópur stúlkna frá
Hong Kong söng og skemmti í
veizlunni. Ein stúlknanna var