Úrval - 01.12.1956, Blaðsíða 32
30
ÚRVAL
mörg hundruð þeirra. Efnasam-
bönd þessi enx rokgjöm, eins og
flest ilmefni, og þess vegna get-
«r brennt kaffi ekki haldið ilm
sínum lengi. Jafnframt eru þau
efnasambönd, sem myndast við
brennsluna, næm fyrir súrefni
loftsins, og geta fyrir áhrif þess
myndast daunill efni, t. d. geta
fituefnin í kaffinu beinlínis
þránað. Enn minni geymslu þol-
ir kaffið eftir að það hefur verið
malað, því að þá hefur loftið
miklu greiðari aðgang að því en
áður.
Hin hressandi áhrif kaffisins
eru, eins og áður segir, frá koff-
eininu komin. Ómengað koffein
er hvítt, fast efni, sem myndar
þráðlaga, silkigljáandi kristalla,
sem bráðna við 239°, og leys-
ast upp í vatni í hlutfallinu 1:80.
Það sogast gegnum melting-
arfærin út í blóðið og berst með
því út um líkamann, sem losar
sig við það smám saman gegn-
um nýrun, ýmist óbreytt eða
sem upplausnarefni, t. d. teó-
brómín og þvagefni. Teóbrómín
er efni náskylt koffeininu og
finnst í kakóbaunum. Líkaminn
iosar sig algerlega við koffeinið
á 24 tímum; það safnast sem sé
ekki fyrir í líkamanum. Ekki
skapast heldur í likamanumþörf
fyrir koffein við neyzlu þess á
sama hátt og fyrir eituriyf.
Þessvegna koma heldur ekki ó-
þægilegar eftirverkanir eftir að
neyzlu þess er hætt á sama hátt
og ,,timburmenn“ eftir neyzlu
áfengis.
Koffeinið hefur áhrif á mið ■
taugakerfið, blóðrásarkerfið,
nýrun og vöðvana. A taugakerf-
ið eru áhrifin þau, að það önrar
heilastarfsemina: skynjun
skerpist og hæfileikinn til sköp-
unar hugmyndatengsla eykst.
Víðfrægur var hinn ótrúlegi
sköpunarmáttur ímyndunarafls-
ins hjá franska skáldinu Honoré
de Balzac, sem drakk að jafnaði.
40 bolla af kaffi á dag.
Koffeinið eyðir einnig þi'eytu-
tilfinningu og verkar á móti
hinum lamandi áhrifum eitur-
lyfja á taugakerfið eins og t. d.
áfengis, morfíns o. fl. Það er at-
hyglisvert, að áhrif áfengis og
koffeins á þreytu eru gagnstæðs
eðlis: áhrif koffeinsins eru
raunveruleg örvun, en áfengið
larnar taugamiðstöðvar, þar á
meðal þá taugamiðstöð sem
þreytutilfinningin á upptöksíní.
Áhrif koffeinsins á blóðrás-
ina eru margþættari. Hjartslátt-
ur örvast, en blóðmagnið, sem
hjartað dælir, eykst ekki. Við
lítinn skammt af koffeini veld-
ur örvun hjartsláttarins hækk-
un á blóðþrýstingi; við stærri
skammt víkka æðarnar út og
dregur það úr blóðþrýstings-
hækkuninni, stundum jafnvel
svo, að um raunverulega lækkun
blóðþrýstings verður að ræða.
Áhrif koffeins á nýrun eru auk-
in þvaglát; þau áhrif eru þó hjá
flestum mjög óveruleg.
Áhrif koffeins á vöðvana er
hægt að prófa með tilraunum,
með því að leggja vöðvavef í