Úrval - 01.12.1956, Blaðsíða 50
48
ÚRVAL
telja, að innan fimmtíu ára
muni Feneyjaborg verða hrun-
in í rústir.
Minniháttar sig hefur gert
vart við sig í Long Beach í
Kaliforníu og á La Guardia
flugvellinum við New York.
Long Beach hefur sigið vegna
þess að olía og gas hefur verið
tekið þar úr jörðu. La Guardia
flugvöllurinn var að mestu lagð-
ur ofan á gamla sorpfyllingu og
hefur hann sigið allt að átta
fetum sums staðar. Flugstjórn-
arbyggingin hvílir á lyfti-
þvingum (jacks), sem verður
að skrúfa upp öðru hvoru til
þess að varna því að byggingin
sigi í jörð.
Sig er oftast vandamál í
sambandi við einstakar bygg-
ingar, svo sem turninn í Písa.
Önnur fræg bygging er Hvíta
húsið í Washington. Settir voru
í það innri burðarveggir úr
stáli, og árið 1950 var það
styrkt ennfrekar þegar í ljós
kom, að innveggir þess höfðu
sigið um tvo til þrjá þumlunga.
Nokkrar aðrar kunnar bygg-
ingar hafa reynzt standa á
ótraustum grunni, svo sem
Westminster dómkirkjan og St.
Páls kirkjan í London, dóm-
kirkjurnar í Strassborg og
Beauvais og Trinity kirkjan í
New York.
Eins og byggingatækni er nú
háttað, er ekki hætta á að hús
sigi (nema þau séu reist á
landsvæði, sem allt er að síga).
Gerð undirstaða er nú orðin
vísindagrein, sem tekið hefur í
sína þjónustu fullkomnustu
tækni nútímans.
Dýrmæt reynsla í þessum efn-
um fékkst þegar neðanjarðai-
brautin í New York var gerð,
en þá þurfti að treysta undir-
stöður bygginga á fimmtíu
mílna vegalengd.
Sfundum má heyra New
Yorkbúa láta í ljós ótta um, að
öll Manhattaney sigi í sjó und-
an hinum gífurlega þunga
skýjakljúfanna. En verkfræð-
ingar segja, að sá ótti sé á-
stæðulaus, eyjan sé í raun og
veru léttari en hún var — upp-
gröfturinn, sem fluttur hafi
verið burt, sé þyngri en skýja-
kljúfarnir sem reistir hafa ver-
ið.
Tuttugu hæða skýjakljúfur
vegur um 12.000 lestir, en upp-
gröfturinn úr grunni hans er
20.000 til 40.000 iestir. Þessi
munur er að vísu minni þegar
um eldri byggingar er að ræða,
en meiri síðan farið var að
nota meira gler og alúmíníum í
hús. 25 hæða nýtízku skrif-
stofubygging vegur ekki meira
en tólf fet hár hlaði af mold og
grjóti, sem er jafnstór að flat-
armáli.
Jafnvel sá sem byggir á
bjargi er ekki alveg öruggur
fyrir sigi, eins og sjá má af því,
að stærsta byging í heimi, Em-
pire State Building í New York,
seig eftir að hún var reist 1930
—31 um röska þrjá millimetra!