Úrval - 01.12.1957, Qupperneq 2
Hvers vegna? — vegna þess
Framh. aí 4. kápuaiOu.
tekið sér sólbað innahúss og með
því- móti lengt þann tima ársins,
sem viö getum notið sólar.
Sv.: Já, það væri vissulega
notalegt, og hollustuauki i þokka-
b<Jt .—- en því miður eru' á þvi
mikil törmerki. Það er að vísu
hcEf/t að búa til rúðugler sem
hleypir í gegnum sig útfjólublá-
um geislum, en framkvæmdin
strandar, eins og margar tækni-
legar framfarir, á kostnaðinum:
framleiðslan er alltof dýr til þess
að hún svari kostnaði.
Venjulegt rúðugler er brætt við
1400—1500° hita, en til þess aö
framleiöa kvartsgler, sem hleyp-
ir í gegnum sig útfjólubláum
geislum, þarf að minnsta kosti
1800° hita, og það er þessi um-
framhiti sem gerir framleiðsluna
of dýra. Hann veldur of miklu
sliti á ofnunum: 1 Bandarikjuniun
hafa verið gerðar tilraunir með
framleiðslu á kvartsgleri til notk-
unar í skólum, fjósum, vermihús-
um og víðar, en ávinningurinn
reyndist alls ekki svara kostn-
aði. Kvartsgler er því aðeins
framleitt i smáum stíl til sér-
stakra nota, svo sem í tilrauna-
glös og önnur rannsóknartæki —
og þeir sem vilja verða brúnir,
verða því enn sem fyrr að ómaka
sig út í náttúruna.
Hversvegna ellefu?
Sp.: Allir sem einhverja nasa-
sjón hafa af knattspyrnu vita,
að í knattspymuliði eru ellefu
menn. En hversvegna eru þeir
ellefu? Því ekki eins 10 eða 13
eða einhver önnur tala?
Sv.: Það er rétt hjá spyrjanda
að talan 11 er ekki svo sjálfsögð,
að engin önnur gæti komið til
greina, enda hafa liðsmerm ekki
alltaf verið 11. Upprunaiega, þ. e.
um miðja síðustu öld, voru 15
menn í knattspymuliði, eins og í
Rugbyliði, en Rugby er undan-
fari knattspyrnunnar. Næsta ára-
tuginn var tala liðsmanna nokkuð
breytileg, en á sjöimda áratugn-
um. þegar reglumar um rang-
stöðu voru upp teknar, tóku menn
jafnframt upp hina pýramídalög-
uðu uppstillingu liðsins, og þá var
liðsmönnunum smámsaman fækk-
að, unz þeir voru komnir niður í 11
og stáðnæmdust við þá tölu.
Hvenær það gerðist er ekki hægt
áð segja með vissu. 1 enskum
knattspymuannálum má lesa um
samk'omuíág dagsett 28. febr. 1866
um kappleik í Battersee Park
milli London og Sheffield þar sem
skýrt er tekið fram að leika skuli
„ellefu í hvom liði". En í kapp-
leik milli Middlesex og Surrey-
Kent, sem leikinn var ári síðar,
voru 12 menn í liði. Ári þar á
eftir var talan þó aftur komin'
niður í 11. Þegar fyrsta bikar-
keppnin milli félaga var haldin
1871, var hámarkstala leikmanna
ákveðin 11, og jafnframt var
ákveðið að setja sérstakan mann
í mark, er hefði leyfi til að nota
hendurnar, en það var ekki fyrr
en 1879 að tekið var upp i knatt-
spymulögin ákvæði um það, að
liðsmenn skuli vera 11 — hvorki
fleiri né færrí.