Úrval - 01.01.1970, Blaðsíða 4
2
ÚRVAL
f s
BLlÐA
(Úr Paradísarmissi Miltons)
Bliður er árblær,
blíð er dags koma,
fylgja henni tónar
töfrafullir
árva'kra fugla,
sem er eyrna lyst.
Blíður er röðull,
þá breiðir hann i.
austan árgeisla
á unaðs foldir,
og aldini,
sem þá deig glansa
fyrir döggfalli.
Blíður er sá iLmur,
sem upp af jörð
©ftir regn rakri
rauk í blóma;
blíð er kvöldkoma
í kælu mildri,
og hljóðlát gríma,
með helgum sér
fagurrödduðum
fugli þessum.
Og með mána þekn,
er svo milt lýsir,
meður gimsteinum.
er glóa svo
hvervetna himins
á hvelfingu,
stjarna fjölfylktu
förune-yti.
Jón Þorláksson
frá Bægisá.
<__________________________________/
ráðast á fangaverði mína í þeim til-
gangi að týna lifinu, líkt og aðrir
fangar höfðu framið sjálfsmorð að
mér aðsjáandi. Það var aðeins eitt,
sem aftraði mér frá þessu og veitti
mér styrk til að hálda áfram að
lifa. Það var vonin um, að mér
auðnaðist að bera vitni um reynslu
mína opinberlega, er ég losnaði úr
fangavistinni og skýra frá öllu því,
sem ég hafði reynt, heyrt og séð...
Ég skoða ekki sjálfan mig sem rit-
höfund. Ég hef ekki verið að reyna
að rita bókmenntalegt verk með
þessum minnisgreinum mínum. í öll
þau sex ár, sem ég eyddi í fangéls-
um og fangabúðum reyndi ég bara
að hafa augun opin og sjá og muna.
Það er ekki um að ræða eina ein-
ustu „tilbúna“ persónu í þessum
skrifum mínum né neina upplogna
sögu. Hundruð, og í sumum tilfell-
um þúsundir, vinta geta staðfest
hvern atburð og hverja staðreynd
AF ÖÐRU EFNI mœtti nefna
skemmtilega svipmynd eftir Clar-
ence Day, höfund sögunnar „Pabba“,
sem kunn er bœði af sviði og úr
sjónvarpi. í greininni, sem ber heit-
ið „Guð og faðir minn“ lýsir höf-
undur snilidarlega föður sinum og
öllu því sem á gekk, þegar hann var
skírður á fuiiorðinsaldri. Þá er einn-
ig vert að geta um frásögn eftir
Peter Freuchen og síðast en ekki
sízt grein um Jörund Hundadaga-
konung, en þar segir frá lífi hans
eftir að íslandsœvintýrinu sleppir.
Jörundur hefur mjög verið á dag-
skrá að undanförnu í tilefni af
leikritum tveggja innlendra höf-
unda um hann.