Úrval - 01.01.1970, Page 12

Úrval - 01.01.1970, Page 12
10 ÚRVAL ustum á vígvöllunum. Ég finn, hve máttvana og lítilsvirði orð mín hljóta að vera sem viðleitni til þess að létta svo óumræðilega sorg. En ég get ekki látið ógert að veita yður þá huggun, sem yður kann að vera í þakklæti lýðveldisins, sem þeir hafa fórnað lífi sínu til björgunar. Ég bið að almáttugum guði megi auðnast að sefa kvöl sonamissisins, og láta yður aðeins eftir hugljúfar minningar um hina horfnu ástvini, og hið helga stolt, sem yður hlýtur að hafa hlotnast við að hafa lagt svo dýrmæta fórn á altari frelsins. Með einlægri virðignu, A. Lincoln. Við ætlum öll að skrifa bréf, bréf sem á að votta samúð eða ham- ingjuóskir, viðurkenningu eða vin- áttu — á morgun eða í næstu viku. f mörg ár ætlaði ég að skrifa menntaskólakennara mínum, sem ég löngu eftir skólavist mína sann- færðist um, að hefði átt drýgstan þátt í, að ég varð vísindamaður og rithöfundur. Og meira en það, þessi kennslukona hafði hjálpað mér til að móta lífssjónarmið mín, sem síð- ar hafa verið grundvöllur að ham- ingjusömu lífi. Að lokum skrifaði ég bréfið. Það kom aftur innan í umslagi frá skóla- stjóranum, sem tilkynnti mér að hún væri dáin fyrir tveim árum. Eg gerði aðra tilraun. í þetta skipti skrifaði ég prófessor, sem ver- ið hafði kennari í erfiðustu náms- grein minni í háskólanum. Hann hafði verið álitinn þumbaralegur og viðskotaillur, en reynsla mín hafði orðið sú, að ekkert af því sem ég lærði í háskólanum tolldi eins vel í mér og það, sem hann hafði kennt mér. Ég skrifaði honum, hve kennsla hans hefði orðið mér nota- drjúg. Hér fer á eftir svarið sem ég fékk: Ég fékk bréf yðar í gærkveldi, einmitt þegar mér var sérstaklega þungt í huga. Það varð til þess að mér fannst sem lífsstarf mitt hefði verið nokkurs virði. Ég get fullyrt, að í þau 35 ár, sem ég hefi reynt að miðla öðrum af þekkingu minni eft- ir beztu getu, hefi ég aldrei fengið eitt einasta þakkar- eða viðurkenn- ingarorð frá neinum nemenda minna. Þakka yður fyrir. Pósturinn er öllum tiltækilegur, og það er ekki átroðningur að skrifa bréf, líkt og að heimsækja ókunn- ugan mann. Ef þér finnst þú hafa einhver vingjarnleg orð að segja um einhvern, er engin ástæða til að skrifa honum það ekki í bréfi, jafnvel þótt þú þekkir hann ekkert. Þegar enska skáldið Robert Browning skrifaði eftirfarandi bréf hafði hann aldrei hitt viðtakanda; hann lét aðeins undan sterkri löng- un, þegar hann hripaði í ákafa: É'g elska kvæðin yðar af öllu hjarta, kæra ungfrú Barrett... hinn ljóðræna ferskleik, hið auðuga mál, hina næmu viðkvéemni, og djörfu, sönnu hugsanir; en við það að ávarpa yður þannig, yður sjálfa, og í fyrsta skiptið, bera tilfinningar mínar mig ofurliði. Ég elska, eins og ég sagði, þessar bækur af öllu hjarta — og ég elska yður líka. Undrandi, en yfir sig hrifin af þessari drifsku, svaraði Elízabeth Barrett samstundis: Ég þakka yður, kæri herra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.