Úrval - 01.01.1970, Qupperneq 17

Úrval - 01.01.1970, Qupperneq 17
GUÐ OG FAÐIR MINN 15 eríitt með að hafa hömlur á sér. Móðir mín gaf honum au.ga öðru hvoru, og ef útlitið varð mjög í- skyggilegt, sagði hún. „Clare, þú mátt ekki.“ Faðir minn hnussaði þá snöggt og ákaft. Einu sinni gekk þó aðkomuprest- ur nokkur of langt í ræðu sinni. í lok ræðunnar dró hann upp mynd af fjármálamanni að loknu dags- verki. Hann lýsti því, hvernig þessi harðbrjósta maður sat umkringdur af höfuðbókum sínum, sem hann hafði verið að grúska í. Af tilviljun varð honum litið út um gluggann á guðsbirtu himinsins, og varð honum þá allt í einu ljóst, að peningar og höfuðbækur voru fánýtt rusl. Og á þessari stundu, meðan rökkrið breiddist yfir borgina, beygði þessi mikli fjármálamaður höfuð sitt og strengdi þess heit með tárin í aug- unum að helga líf sitt æðri mark- miðum. „Bull“, hraut af vörum föður míns, svo ofsalega, að maðurinn í stúk- unni hrökk við, og ég heyrði, að gamla frú Tillotson, í annarri stúku fyrir aftan, flissaði. Auk þess sem slík lýsing á fjár- málum var ósönn, var öll túlkunin hættuleg í augum föður míns. Hver sem haldinn var þeim órum, að peningar væru „rusl“ hlaut að vera með lausa skrúfu. Þegar sálmar voru sungnir, stóð faðir minn venjulega þögull eins og örn í dúfnahóp og lét aðra um að auðmýkja sig af tilfinningasemi, sem hann tók ekki þátt í. Skýldu skjóllausu höfði mínu. með skugganum af væng þínum. Hvernig gat faðir minn sungið slíkt? Höfuð hans var allt annað en skjóllaust, honum hefði aldrei dott- ið í hug að biðja um skjól. Þar sem hann stóð þarna, drambsamur og einbeittur, sá ég hann í anda ganga út í geiminn með sama óbugandi sjálfstæðinu — lítinn depil, bjóðandi byrginn dauðanum jafnt og óend- anleikanum. Faðir minn var vanur að gefa einn dollar á samskotadiskinn á hverjum sunnudegi. Móðir mín blygðaðist sín fyrir þessa litlu gjöf. En faðir minn sagði, að einn doll- ar væri dálaglegur skildingur og móðir mín hefði gott af að gera sér það ljóst. Hann bar fram mörg rök máli sínu til stuðnings, en að lok- um tókst samt móður minni að sann- færa hann um, að það væri fyrir neðan virðingu hans að gefa ekki meira. Ekki lét hann samt alveg undan, heldur kom með málamiðl- un: áður en hann fór til kirkjunnar, stakk hann dollaranum í hægri vest- isvasann, en í vinstri vasann setti hann nýjan fimm dollara seðil; og svo lýsti hann því yfir, að héðan í frá lofaði hann því að gefa fimm dollara seðilinn, ef presturinn héldi góða ræðu. Þegar presturinn steig í stólinn, horfðum við strákarnir á hann eft- irvæntingarfullir, eins og hann væri veðhlaupahestur að búa sig til hlaups. Venjulega fyrirgerði hann öllum rétti til verðlaunanna þegar á fyrsta sprettinum. Stundum byrj- aði hann vel, en lenti svo út af þeirri braut, sem faðir minn hafði ætlað honum að fara, og geystist óafvit- andi í allt aðra átt. Þetta kom okk-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.