Úrval - 01.01.1970, Síða 41
AIJGLÝSINGASTARFSEMI í SPÉSPEGLI
39
konunni? Eða er takmarkið að selja
og græða meira og meira? Þessar
auglýsingar eru bæði heimskulegar
og auðvitað auðmýkjandi. Takmark
auglýsinganna er auðvitað að selja
sem mest, en þær eru bara ennþá
svo skelfilega lágkúrulegar.
Vita auglýsingarstjórnarnir ekki,
að helmingur af giftum konum frá
21—61 árs taka þátt í atvinnulífinu?
Og þetta þýðir að helmingurinn af
giftum konum á bezta aldri hefur
eigin fjárráð. Hvers vegna er það
alltaf auglýst, að aðeins eiginmenn-
irnir hafi fjárráð? Hvers vegna dett-
ur engum auglýsingastjóra neitt nýtt
í hug? Hafa þeir ekkert ímyndun-
arafl?
Og hver er ástæðan fyrir því, að
allir þessir ágengu menn gera sýn-
ingarstúlkur, kvikmyndastjörnur og
fegurðardrottningar að fyrirmynd
allra kvenna? Unga fólkið nær al-
drei þessu takmarki, og um þrítugt
eru bæði margir menn og konur
óánægð með starf sitt. Karlmenn-
irnir náðu aldrei í fegurðardísina
sína, og stúlkurnar fengu aldrei
tækifæri til að verða ungfrú al-
heimur.
Auglýsingastarfsemin þyrfti sann-
arlega að verða örlítið heiðarlegri
og byggja meira á staðreyndum.
Það myndi fyrirbyggja mikla óá-
nægju hjá kvenþjóðinni og þreytu
hjá karlmönnunum.
Þessar kjánalegu auglýsingar eiga
sinn þátt í að gerj mörg hjónabönd
smámunasöm og hégómaleg. Sama
máli gegnir með margar kvikmynd-
ir og sjónvarpsmyndir. Það þarf að
breyta þessu. Það þarf að sýna okk-
ur menn og konur eins og þau eru,
og það er hægt að gera það á
skemmtilegan hátt, ef menn eru
sannir og raunsýnir
E'inu skötuhjúin, sem geta lifað ódýrar í sambúð heldur en „einbúi",
eru flóin og hundurinn.
Getur það hugsazt, að þetta sé satt? Samkvæmt ensku tímariti var
tilkynning Þessi fest á kirkjuhurð eina einhvers staðar í Irlandi:
„Það tilkynnist hér með, að framvegis verður enginn grafinn í þessum
kirkjugarði nema þeir, sem búa í sókninni. Þeir, sem vilja láta grafa sig,
snúi sér til min. E. Grubb, ritari."
Irish Dicj.
Farðu eins langt og Þú getur séð, og Þegar þú kemst þangað, muntu
geta séð enn lengra.
S.M.
Auglýsing úti í glugga snyrtistofu einnar í Belfast í Norður-lrlandi:
„Menn, gjörið svo vel að blístra ekki, þegar stórkostleg stúlka stígur
fæti sínum út fyrir dyrnar hérna. Það gæti verið hún amma ykkar,“