Úrval - 01.01.1970, Blaðsíða 53
MOBY DICK BATT ENDI Á FERIL . . ,
51
inn af skipstjóranum, Akabs, mætir
sjálfum erkióvininum, ferst skipið
og hvalurinn. Sá eini, sem kemst af
er sögumaðurinn, Ismael, en hann
bjargar sér á líkkistu.
Þessi mikla skáldsaga, sem síðar
átti eftir að seljast í milljónum ein-
taka og verða jafn vinsæl með
bandarískum drengjum og Robinson
Crusoe í Evrópu, færði höfundi sín-
um ekki svo mikið í aðra hönd, að
hann gæti borgað skuldir sínar.
Hann skrifaði nokkrar skáldsögur í
viðbót, en hylli lesendanna var horf-
in. Ekki stoðaði heldur að skrifa
sögur í tímarit. Honum tókst samt
að komast yfir fjárhagsörðugleikana
og jafna sig eftir allt þetta mótlæti.
Hann reyndi án árangurs að fá stöðu
hjá ríkinu. Það virtist fokið í öll
skjól. Þeir einu sem enn höfðu trú
á honum voru ættingjar eiginkonu
hans og eiginkona hans. Þau studdu
hann til utanferðar. Árið 1856 ferð-
aðist hann til Palestínu.
En Melville var niðurbrotinn
maður. Hann sá allt það með eigin
augum, sem hann hafði lesið um,
en hann kvaldist af heimþrá og fór
fljótlega heim. Hann hafði ekki enn
fundið sjálfan sig. Hann seldi land-
areign sína, þegar heim kom og
flutti til Nýju Jórvíkur. Þar fékk
hann stöðu sem tollvörður og stund-
aði það starf til æviloka af dæma-
fárri samvizkusemi. Árið 1886 fékk
hann um stund leyfi frá störfum og
þá kom aftur upp löngun í honum
til að skrifa. Hann reit þá litla
skáldsögu, sem fékk nafnið Billy
Budd. Hún fannst ekki fyrr en
mörgum árum eftir dauða hans. Þá
var Melville orðinn frægiu’ fyrir
skáldsögu sína, Moby Dick, og fund-
ur þessarar skáldsögu varð bók-
menntalegur viðburður.
Melville dó áður en hann gat yf-
irfarið handritið öðru sinni. Eigin-
kona hans setti handrit þetta niður
í gamla skipskistu ásamt öðrum eft-
irlátnum blöðum. Þegar hún dó
erfði barnabarn hennar kistuna og
handritið fannst. 1924 var þetta
meistaraverk, sem hann skrifaði í
hárri elli, gefið út og upp frá þeim
degi hafa Bandaríkjamenn álitið
Herman Melville vera einn af mestu
rithöfundum sínum.
Kona, klædd pappírskjól, segir við vinkonu sína með ólundlegri röddu:
„Æ, ég sá eina kvensnift I afriti af þessum.“
Rarl Wilson.
Bandarískur sjúklingur, sem -er að fara í skemmtiferð til Evrópu,
spyr lækninn sinn: „Hve margar evrópskar stórborgir þoli ég að af-
greiða á 21 degi?“
Barlow.
Valdið spillir fáum, en skortur á styrkleika spillir mörgum.
Eric Hoffer.