Úrval - 01.01.1970, Qupperneq 100

Úrval - 01.01.1970, Qupperneq 100
98 sinni að leggja ekki af morkum lág- marksvinnu. Klefarnir í þessum „sérmeðhöndl- unarskálum“ eru mjög svipaðir klefunum í einangrunarskálunum. Og hegningin hér er sú sama . . . . þ.e. hungur. En fangar, sem hljóta þessa „sérmeðhöndlun", eru samt neyddir til þess að vinna jafnvel enn meira en áður þrátt fyrir hungrið . Og takist þeim ekki að leggja fram lágmarksvinnuafköst, er dregið úr hinum fátæklega mat- arskammti þeirra. Og þá hefst víta- hringur, því að þessi minni matar- skammtur gerir það að verkum, að vinnuafköstin minnka stöðugt og meir aftur úr. Maður deyr ekki beinlínis úr hungri, heldur missir maður smám saman allan mátt. Menn, sem hljóta slíka „sérmeð- höndlun“ árum saman, breytast smám saman í alger dýr. Þeir gleyma því alveg, hvað slíkar dyggðir sem sjálfsvirðing, heiður og siðferði merkja. í hverjum klefa eru einn eða fleiri uppljóstrar meðal fanganna, sem „kjafta frá“ hverju einasta smáatriði, sem kann að virðast á einhvern hátt tortryggi- legt, til þess að krækja sér þann- ig í svolítinn aukabita eða einhver minni háttar fríðindi. Aðrir fyllast algerri örvæntingu og hengja sig eða þeir skera á slagæðina undir teppinu í skjóli næturmyrkursins eða skadda sjálfa sig á hinn hrylli- legasta hátt. Dag einn, meðan á dvöl minni þarna stóð, ákváðu þrír fangar að fremja sjálfsmorð. Þeir yfirgáfu tígulsteinaverksmiðjuna í vinnu- ÚRVAL tíma og géngu að girðingunni, sem umlykur svæðið. „Klifrið ekki uppeftir girðing- unni! Ég skýt ykkur þá!“ hrópaði varðmaður í einum varðturninum. „Gerðu okkur þann mikla greiða. Bjargaðu okkur fráþessu hamingju- lífi!“ hrópaði einn fanginn og byrjaði um leið að klifra upp eftir girðingunni. Það kváðu við byssu- skot, þegar hann var kominn upp á girðinguna, og hann hneig mátt- laus út af. Lík hans var fast í gaddavírnum og hékk þarna áfram. Næsti maður fór að klifra og beið þess rólegur að hljóta sama dauð- daga. Og aftur varð varðmaðurinn í turninum við óskum hans. Og þriðji maðurinn klifraði einnig upp eftir girðingunni og var einnig skot- inn. Síðar var mér sagt, að hann hefði ekki dáið, heldur hefði hann sézt á sjúkrahúsi í fangabúðum númer 3. Þannig losnaði hann að- eins við „sérmeðhöndlunina“ um tíma. En hinir höfðu losnað þaðan að eilífu. „HÖRUNDSFLÚRAÐI“ MAÐURINN í sérmeðhöndlunarskálunum varð ég vitni að ýmsu, sem ég hefði aldr- ei trúað, að ætti sér stað, hefði ég ekki séð slíkt með eigin augum. Hið hræðilegasta var hörundsflúr- ið, sem sumir fangarnir þöktu líkami sína með. Ég sá til dæmis tvo fanga, sem höfðu stungið og rist þessi orð, á kinnar sínar og enni: „Kommúnistar eru böðlar“ og „Kommúnistar drekka blóð fólks- ins“. Annar fangi hafði rist orð þessi með stórum stöfum þvert yfir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.