Úrval - 01.01.1970, Page 110

Úrval - 01.01.1970, Page 110
108 flestir hinna trúuðu fara eftir regl- um og fyxirmælum trúarbragða sinna, þar á meðal fasta á föstutím- anum, jafnvel hér á þessum stað. „Þið eruð að ljúga," sögðu fanga- verðirnir við þá. ,.Þið eruð bara að látast.“ En á hinum fyrirskipuðu dögum föstunnar nærðust þó marg- ir hinna trúuðu eingöngu á brauði og vatni. Nú ætla ég að minnast svolítið á þá, sem urðu geðbilaðir. Fangarnir sögðu oft, að það væri ekkert and- lega heilbrigt eða eðlilegt fólk að finna okkar á meðal. Og það var sannarlega erfitt að halda áfram að vera andlega heilbrigður við þessar aðstæður. í klefa einum í Vladimirfangels- inu tókst nokkrum föngum að ná í hnífsblað. Svo söfnuðu þeir sam- an dálitlu af pappír. Síðan skáru þeir allir svolítinn bita af eigin holdi, sumir af kvið sínum, aðrir af fótleggjum. Þeir köstuðu bitunum í fat, gerðu sér svolítið bál úr papp- írnum, og tóku að sjóða kjötið. Þeg- ar fangaverðirnir urðu varir við, hvað var að gerast, og þutu inn í klefann, þrifu fangarnir hálfhráa „kjötkássuna" og reyndu að troða henni upp í sig. Ég veit, að það er erfitt að trúa þessu, en þetta gerðist í raun og veru. Ég talaði síðar við nokkra af föngum þeim, sem um var að ræða. Og hið furðulegasta við þetta allt saman er, að þeir virtust alveg eðli- legir á allan hátt. Einn þeirra var Yuri Panov. Það var varla eftir nokkur óskaddaður blettur á líkama hans, því að hann hafði oftar en einu sinni skorið smábita úr holdi ÚRVAL sinu. En samt virtist Panov ekki vera andlega vanheill. Við ræddum oft slíka atburði í fangabúðunum. Ef menn þeir, sem gerðu slíkt og þvilikt, voru í raun og veru andlega bilaðir, hvers vegna voru þeir þá í fangelsi? Þess er krafizt, jafnvel samkvæmt sovézk- um lögum, að andlega vanheilt fólk sé sent á geðdeild eða komið fyrir í vörzlu hjá ættingjum sínum. En væru menn þessir andlega heil- brigðir, hvað er þá hægt að segja um þau lífsskilyrði, sem koma and- lega heilbrigðum mönnum til þess að gera slíkt og þvílíkt? Þetta er eitt af því, sem þjóðfélag okkar ætti að yfirvega. En fátt fólk veit nokkuð um slíkan og þvílíkan hrylling. ÁVEXTIR STARFSINS Ég var alveg óvænt sendur aftur til fangabúðanna, ári áður en fanga- vist mín átti að enda. Kannske þörfnuðust þeir rýmisins í Vladi- mirfangelsinu fyrir nýja gesti. Ég kom til Potma snemma sumars og var sendur til fangabúða númer 7 ásamt nokkrum öðrum föngum. Við fórum þangað fótgangandi frá járnbrautarstöðinni í Sosnovka í fylgd var’ðhunda og vopnaðra her- manna. Það var svo ósegjanlega ánægjulegt að ganga eftir veginum, í gegnum litla bæi og þorp. Og í fjarska gátum við greint skógana! Það óx gras við vegarbrúnina. Ég hafði ekki séð gras í tvö ár. Fangarnir í fangabúðunum hóp- uðust strax í kringum okkur, þegar við vorum komnir inn fyrir hliðið. Þeir spurðu okkur að nafni, hversu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.