Úrval - 01.04.1962, Page 114
122
ÚRVAL
okkur finnst öllu réttlæti og sann-
girni misboðiS, og það vekur upp
í okkur uppreisnaranda.
En þeir sem rísa til andstöðu
eru ekki vel liðnir, og þess vegna
verðum við að loka augunum
fyrir því. En allajafna reynum
við samt að stilla aðfinnslum okk-
ar í hóf, þótt það gangi misjafn-
'lega.
Það er sannarlega nokkuð langt
gengið, ef maðurinn þinn reykir
í rúminu (eða finnur að því við
þig, ef þú gerir það) eða ef hann
kemur seint heim í matinn á
hverju kvöldi (ellegar er svo leið-
inlega nákvæmur að koma inn úr
dyrunum á slaginu klukkan 15
minútur yfir sex á hverjum ein-
asta degi).
Það verður að teljast eðlilegt,
að stöku sinnum hlaupi í nöpina
á manni, en þó má spyrja: „Hvers
vegna geri ég svona mikið veður
út. af þessu núna, þar sem ég hef
iátið það afskiptalaust áður?“
Svarið hlýtur að liggja í því, að
þér finnst eitt tækifærið ákjós-
anlé-gra til nöldurs en annað.
Flestir eða allir þurfa að létta
á sér með því að segja það, scm
þeim býr í brjósti, enda þótt það
komi illa við nærstadda. En það
getur munað miklu, hvaða timi er
vaiinn til þess arna. Það er til
dæmis ekki sama, hvenær eig-
inkonan nöldrar í manninum sín-
um. Stundum geta áhrifin verið
þveröfug við það, sem til er ætl-
azt, — aukið hjá honum sektar-
kennd. Það er lika oft hinn leyndi
tilgangur með nöldrinu.
Ef okkur finnst á okkur ráðizt
að einhverju leyti, er ekki nema
eðlilegt, að við snúumst til varn-
ar eða hefjum gagnsókn. Ann-
ars bælast tilfinningarnar. Þetta
á ekki sízt við um eiginkonur. Ef
ég heyri konu nöldra, verður mér
fyrst á að spyrja sjálfan mig:
Hvað skyldi yfirleitt ama að þess-
ari konu? Og ef ég heyri eigin-
mann kvarta um, að konan sín
jagist i sér, spyr ég hann, hvað
komí til.
Kannski svarar eiginmaðurinn,
að hann viti það ekki. Ef svo er,
þá liggur ekkert beinna við en að
ráðleggja honum: „Reyndu að
komast að þvi“. En ef ég þykist
vita ástæðuna, þá spyr ég hann,
hvort hann hafi látið konu sína
vita það. En menn gera það ekki
nærri alltaf. En ég held, að það
sé til góðs.
Undir vissum kringumstæðum
er þetta sérstaklega mikilsvert.
Ungar eiginkonur eru oft óörugg-
ar með sjálfar sig fyrst eftir að
þær hefja búskapinn, sérstaklega
séu þær ekki hneigðar fyrir mat-
reiðslu eða ef tengdamömmu-
vandamál er tii staðar.
Seinna geta skapazt vandamál