Ný sumargjöf - 01.01.1865, Side 88
88
fyrir sig og kölluð Victoria. þegar nú gullsagan barst
frá Sydney, kom eynidarhljóð í fjárbændur og verzlun-
armenn, því allir sem vetlingi gálu valdib, þustu til nám-
anna, og átlu hinir þá ekki á öðru völ, en annaðhvort að
verða verkmönnum samferða, eður sjá allar vonir sínar að
engu verða. Var því heitið 2000 dala verðlaunum þeim
er gullnáma fvndi, ekki lengra frá Melbourne en 25 milur.
Fóru menn þá til og leituðu af niiklu kappi, enda varð
árangurinn sá, að menn fundu afarmikla gulltekju hjá
Ballarat, við upptök ár þeirrar er Lea heitir. það er
ekki meira en svo sem 12 mílur frá borgunum Gelon og
Melbourne, og urðu þær nú með öllu auðar að mönnum,
er allir þyrptust að uppsprettu auðæfanna. Að þrem
vikum liðnum voru þangað komnar 3000 manna. þegar
fjórir menn leituðu í sameiningu, þá fékk jafnaðarlega hver
um sig 20 lóð gulls í hlut á degi hverjum og optsinnis
allt að 5 og 8 pundura.
En hér var þó ekki til setu boðið heldur en annar-
staðar, þ\í alltaf fréttist urn nýja og nýja gulluáma, og er
víst sjaldgæft, að nokkur uppgötvun hafi ollað slíkum uin-
brotum og ókyrð sem nú varð í Australíu. Fólkið æddi
úr einum staðnum í annan, og ginntist af ýktum fregnum,
þangað sem sagt var að auðs vonin væri meiri. A einum
degi hurfu 20,000 námamanna til nýrra gullstöðva, og
höfðu þó vel aflað þar sem þeir voru, enda brást þeim
opt vonin og gripu í tómt. Allt komst nú í uppnám, og
var einsog mannleg náttúra truflaðist og umhverfðist frá
neðsta grunni; var það alltítt að menn yrðu vitstola eða
fyrirfæru sér sjálfir út úr ofsakæti eða örvæntingu; bönd
þau, er halda félagi manna saman, voru sundurslitin, glæpir