Fylkir - 01.05.1920, Síða 10
10
til íylgdar ijt að námunum, nl. bóndann á Ketilsstöðum; annai'S
hefði ferð mín út á Tjörnesið orðið seinlegri og árangursminíti-
Bóndi var hinn ötulasti og viðkunnanlegasti fylgdarmaður,
scm eg hef lengi kynst, og gekk okkur ferðin greitt og slysa-
laust. Við komum út að námunum stundarkorni eftir hádegi og
höfóum því nokkra klukkutíma til að athuga steinalögin eins og
eg hafði ætlað.
Oráhvíti sandsteinninn er bersýnilegur framan í malarkambin_
um. Uggja lög af honum tveggja til fjögurra feta þykk skamt
frá sjó og alt upp að brún, þar sem námugöngin hafa verið
grafin. Víða hefur vatn og frost sprengt steininn og liggur hann
hér og þar meðfram veginum í stærri eða smærri brotum. O'l
lögin hallast lítið^eitt til norðurs, svo nemur h. u. b. 1 : 30, svo
að við landssjóðsnámuna, sem er 8 — 900 metrum utar, er grá-
hvíti steinninn mestallur, ef ei allur, undir sjó. Sú náma er ðr-
stutt yfir flæðarmál og eru sandlögin, sem liggja milli kolalag'
anna, dökkgrá að lit og gegnsósuð af vatni og sum þeirra leir-
biandin. Pað er »Ieirinn«, sem allir, er Tjörneskolin hafa keypf>
þekkja. Fylgdarmaður minn tók dálítið af þessum dökkgráa sand-
steini eða »leir« úr opi landssjóðsnániunnar, en ekki var forvitm
mín né áhugi minn svo rnikill, að eg færi sjálfur inn í hana,
því af útliti hennar að dæma gat maður búizt við, að helluþakið
hryndi inn þá og þegar; enda voru göngin hálffull þegar orðih,
svo illa hafði verið reft og vióað undir.
Eg tók þennan dökkgráa sandstein eða »leir« ei að síður, baeði
vegna þess, að ósköpin öll voru til af honum þar við námuna
og mér hafði verið mikið af honum sagt, og svo vegna þess,
að við höfðum séð þar meðfram veginum rétt fyrir sunnan nám-
una stóra hauga af þessum leir og kolasora, og stóð reykur
upp af sumum þeirra, en grænleitar og rauðar skellur var að
sjá, þar sem brunnið hafði. Qrænleitu skellurnar voru brenni-
steinskendur kísill, sem lá þar enn óbrunninn og reykti, einkum
ef kol voru nálægt, en rauðu skellurnar eða blettirnir voru mur-
steinslíkir steinar í alls konar myndum, og sumir þeirra voru Þa