Fylkir - 01.05.1920, Síða 72
72
Island í stríði.
(Framh. frá 4. hefti »Fylkis«).
»Bóndi er bústólpi,
bú er landstólpi;
því skal hann virður ve!.«
Kveður hrönn við kalda hlfð,
ktettar taka undir:
Heiglum ei ué heimskum lýð
henta þessar grundir.
F. B. A.
Pví til sönnunar, að ísland getur fœtt, klœtt og hýst alla sina
ibúa af sinum eigin afurðum til lands og sjávar, vil eg minna
lesendur á það, að, samkvæmt hagskýrslunum, gat sá búpening-
ur, sem landið átti 1917, gefið nálœgt 68—70 þús. smálestir nf
kjarnbeztu fœðu, svo framt að fráfœrur hefðu verið álmennar og
skepmihðld yfirleitt góð; því þá var sauðfénaður hér á landi utn
603 þús., þar af 350 þús. ær með lömbum; nautpeningur 25
þús., þar af 18 þús. kefldar kyr og kvígur. Auk þess áttu lands-
menn um 51 þús. og 300 hross, þar af um 4 þús. folöld. Ann-
ar búpeningur er ekki teljandi, nema alifuglar og fáeinar geitur;
svínarækt er hér ekki stunduð.
Eins og menn vita er það gömul regla, að ærin gefi yfir sum-
arið, sé henni fært frá, 30 potta mjólkur og 7 tnerkur eða 3V*
pund smjörs. Gerir þetta yfir sumarið, séu fráfærur almennar,
10 mill. pt. mjólkur, eða IOV2 mill. kg. mjólkur og skyrs; og 1
mill. pd. eða V2 mill. kg. smjörs. Auk þess má telja, ef ekki skal
fjölga fé, að 350 þús. kindum á ýmsum aldri sé slátrað á haust-
in, og má óhætt telja meðalvigt matar af hverri kind 45—55
pund (eða 25 kg.) til jafnaðar af fullorðnu. — Að skera lörob
og veturgamalt var ekki siður hjá góðum búmönnum fyr á tím-
um. — Gerir það alls nálægt 193/4 million kg. matar; þar af 83/*
million kg. kjöts.