Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 3

Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 3
Ó Ð I N N 3 Kóngur svaf. Af sinni þungu sorga’ og efa fjötrar sprungu. Ut um geiminn allan sungu ótal raddir sama brag. Sólukerfin, er svifu’ um geima, sömu áttu lög og hreima eins og foss og aldan heima. 011 þau sungu fuglsins lag. Kóngur Iá í dái drauma, dularfullra hugarstrauma hljóma, söngva, fossa og flauma fann hann niða mjúkt í sál. Fór að skilja fuglsins mál: Til er á, sem eilífð heitir, aldrei straumi sínum breytir, aldrei skeið til enda þreytir, ós nje lind þar hvorki finst, þótt þú leitir yst og inst. Ómar frá þeim áar niði eru’ í mínum söngva kliði. Leitir þú að fró og friði, festu blund við sönginn þann. Alla síðast svæfir hann. Uppi’ í lífsins hæstu höllum hljómar alt af söngum snjöllum, sem þar sungnir eru’ af öllum, og við söngva niðinn þann allir fyllast einum vilja, allir lífsins takmark skilja, allir sama sönginn þylja, syngja lof um skaparann einum munni’ um einan hann. Þá er æðsta marki og miði mannsins náð og alheims friði, leyst hver gáta á lífsins sviði. Lengra söguna’ enginn kann. % Þó að út um ýmsa geima æðri, fegri og stærri heima eigi mannsins sál að sveima, samt er lífsins insta þrá algleymisins yndi að ná. Hjeðan dyr eru opnar einar. Einnig dýrin, jurtir, steinar halda sínar brautir beinar, bíða lausnar, er þau fá síðar meir, og svífa þá inn á lífsins æðri sviðin, inn í fagra söngva kliðinn, inn í mikla alheims niðinn og að hinsta marki ná. Hræðstu’ ei lífsins leyndardóma; líttu’ á skraut og fegurð blóma, hlýddu’ á lífsins unaðsóma. Alt, sem hjer á jörðu grær, er í svefnsins dái að dreyma dýrðarveröld nýrra heima. Lífið alt mun áfram streyma, uns það settu marki nær. Vakna kóngur, vertu kátur. Vílið, efinn, böl og grátur læknast, ef þú lífsins gátur leysa biður Mannsins son. Leiðin eina’ um ókunn sundin er af honum sjeð og fundin inn í hæsta helgilundinn. Hann gaf jarðar lífi von. Og í fuglsins ljúfu lögum ljóð frá bernsku sinnar dögum, sömu ljóðin, sem í högum syngur lind við blóm og strá, kóngur hlýddi hljóður á, ótal margt af söngum, sögum, sálma, vers og kvæði. Það voru ný og það voru gömul fræði. Þ. G. Móðurmál. (H. Garborg). Hvað fær hrært við hjartastrengjum? Hvað fær örvað þrek í drengjum? Það er móðurmál. Hvað fær svalað hreldri lundu? Hvað er kærst á gleðistundu? Það er móðurmál. Eins og gullið glæsta, skíra, geymdu þennan arfinn dýra, hið kæra móðurmál. Lát það hljóma ljúft og lengi, lát það bæra hjartastrengi. Heiðra móðurmál. S. K. Steindórs þýddi. £)£>(£)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.