Óðinn - 01.01.1936, Page 14

Óðinn - 01.01.1936, Page 14
14 Ó Ð I N N Landnámsmaður. Það var eitthvað um 1897 — árið eftir jarðskjálftann mikla á Suðurlandi 1896 —, að maður nokkur kom frá Ameríku. Hann var íslenskur og þá um þrítugsaldur. Sá, er þetta ritar, hafði þá hvorki heyrt hann nje sjeð áður. En í Holtahreppi könnuðust ýmsir, eða nokkuð margir, við hann, og þóttust sumir kunna ýmislegt um bernsku og æsku hans að segja; þar á meðal það, að þá hefði hann verið all-einkennilegur, nokkuð »fyrirtektasamur« og glettinn. Sagður var hann hafa verið munaðarlaus á bernskuárum, en upp alinn að miklu eða mestu leyti hjá einum mesta höfðings- bóndanum í Holtahreppi á þeim dögum, Erlendi Eyj- ólfssyni á Herríðarhóli, og konu hans Guðrúnu Jóns- dóttur. Eins og flestir framkomnir sveitadrengir á þeim árum, mun þessi maður all-snemma hafa verið sendur til sjávar, til róðra á opnum bátum eða skip- um; en engar sögur gengu af sjómensku hans. En hvað sem um það var, þá má þó fullyrða, að nokkur dugur og stórhugur hafí verið í drengnum, því að sagt var, að snemma hafi hann tekið að hnýsast í bækur og ýms fræði, og loks hafi hann farið að bisa við að læra eitthvað í útlendum málum og snapa sjer út ofurlitla tilsögn í þeim, þar á meðal í ensku. Er sagt, að Gísli læknir Pjetursson á Eyrarbakka hafi verið einn helsti — og enda aðal-kennari hans í ensk- unni o. fl. En hvort sem þessi kensla og lærdómur var meiri eða minni, þá ljet piltur sjer þetta nægja sem nesti alla leið til Ameríku, og er eigi vitað, hver annar farareyrir var, eða hvernig sú ferð var farin. því þar sem vaxandi kærleikur og vaxandi friður og gleði ríkir, er síðasta árið fegurst og best. Þessi orð eiginmannsins: »Hún gerði mig að gæfu- manni«, eru án efa fegursta myndin, sem hægt er að draga upp af lífi og starfi þessarar góðu og mikil- hæfu konu, Þuríðar sálugu, og jeg veit með vissu, að þau eru ábyggilegur sannleikur; hún gerði eiginmann sinn að virkilegum gæfumanni og börnin sín að góð- um, elskulegum börnum. En hún og þau hjónin hafa líka aukið mikið á gleði og gæfu annara manna; það var gott fyrir alla, sem lifðu skuggamegin á vegi lífs- ins, að leita til þeirra; hjá þeim gátu þau reitt sig á að finna sólargeisla, — samúð og kærleika —, og virka hjálp, þegar þörfin var brýn.— Hinir sterku skilja einatt best veikleika hinna veiku og eru fúsastir að bera með þeim byrðarnar, sem eru þeim of þungar. Þessi merku og mikilhæfu hjón, sem allir kunnugir bera svo hlýjan hug til, áttu lykilinn að sælulandinu, traustið til frelsarans Jesú Krists, og vjer, vinir þeirra, vitum, að bænir þeirra opnuðu þeim fagra heima elsku og umhyggju drottins; þau fengu á alveg sjerstakan hátt að reyna mátt og vernd hins volduga í lífinu, og þess vegna gátu þau einnig nú, er skilnaðarstundin rann upp, sagt: »Verði þinn, en ekki minn, vilji, faðir«; þau vissu, að faðirinn himneski veitir alt af börnum sínum hið besta, hvort sem vjer skiljum það eða ekki. Með innilegu þakklæti til þessara kæru hjóna, fyrir ástúðlega vináttu þeirra, vil jeg enda þessar línur, og með þeirri bæn, að blessun himnanna hvíli yfir þeim, hvort sem þau eru »heima eða að heiman frá drottni*, og yfir öllum ástvinum þeirra. Kveðja frá sjera 3óni N. }óhannessen við jarðarför konu hans frú Þuríðar Filippusdóttur. Skín, Drottins ljós, og lýstu veginn mjer, því lífs míns sól í myrkum skuggum harma hjúpuð er, en hjá þjer skjól jeg veit jeg finn, er harmur hjartað sker. O, hönd mjer rjettu, Guð, jeg treysti þjer. Þú leiddir mig, barst Ijósið veg minn á, mín Ijúfa snót. Við lifðum okkar æfi líkt og strá af einni róf. Og umsjá þína sjerhvern dag jeg sá sem sólargeisla heimilinu á. Við áttum saman eina von og trú. Jeg alt af fann: Með þinni ást og góðleik gerðir þú mig gæfumann. Jeg finn, hve margt jeg á að þakka þjer af því, sem líf og gæfa færðu mjer. Jeg fer nú einn, án fylgdar þinnar, heim. Mjer finst alt breytt. Þó ómar rödd: Alt gott í minni geym, af Guði veitt. Mjer heilsar nú fyrst hús mitt gleðisnautt, er heim jeg kem og sæti þitt er autt. Haf hjartans þökk. — Að hugsa’ um endurfund skal huggun mjer, því jeg kem yfrum eftir litla stund á eftir þjer. Og rjettu mjer þá hlýja kærleiks hönd, er höfn jeg tek á vonalandsins strönd. Guðm. Einarsson. Þ. G.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.