Óðinn - 01.01.1936, Síða 17

Óðinn - 01.01.1936, Síða 17
Ó Ð I N N 17 börnin að heiman. En á meðan þau voru heima, var líka byrjað á nýjan leiU að reyna að bæta von- brigðin vondu, sem hinn upphaflegi mikli og skáld- legi trjá- og jurtagarður húsbóndans þarna hafði valdið með ófrjósemi sinni og ónýtileik. Komu þá tveir garðar í staðinn fyrir einn, engu ólistulegri en sá upp- haflegi, og má segja, að þar hafi skift með sjer verk- um börnin og faðirinn. í all-brattri brekku fyrir framan og neðan húsaþyrpinguna, niður að þjóðveginum, var þá komið dável ræktað tún. Þann blett allan lögðu systkinin undir sig, umgirtu hann vandaðri girðingu og smekklegri, ofan frá suðurhliðum husaþyrpingar- innar austast og vestast og niður undir þjóðveginn, og komu síðan upp innan girðingarinnar einum hin- um fegursta jurta- og blómareit í brekkunni, beint móti suðri og sól; öll brekkan hlaðin upp í syllur og stalla, ýmist beina eða bogadregna, sæti, bekki o. s. frv., með mjög reglulega settum ungum trjám og blómajurtum, en fallegum breiðum tröppugangi úr trje niður brekkuna um miðjan garðinn, en steypuhellum þar fyrir neðan, auk annarar prýði. Voru strax og eru enn fullar líkur fyrir því, að þarna þyrftu eigi vaxtar- og fegurðarvonir að bregðast, ef hugulsemi og hag- sýni nyti, enda hefur garður þessi hingað til verið yndislegur reitur að sumarlagi. En í sömu brekkunni, rjett vestan og norðan við umræddan skrúðgarð, var lítt ræktað stórgrýtis- og móanef suðvestur úr bæjar- holtinu, einnig rjett við þjóðveginn. Þar bar gamla ný- byggjann niður í tómstundum sínum, og tók að afgirða, með háum garði úr grjóti og sniddu, all-stóran blett, og síðan að ryðja og rækta innan þessarar girðingar. Þar, sem grýttast var, kom hann fyrir ýmislegustu fjalla- og kletta-blómajurtum, en annarstaðar ýmsum öðrum trjá- og jurtategundum. Einnig þessari grýttu brekku breytti hann ýmislega, í syllur og stalla, króka og kima, sæti, ganga o. s. frv., svo að gaman var yfir að líta, um að ganga eða setja sig niður. Þarna var skjól og sól, jarðvegur allgóður innan um grjótið, og einnig unt að veita nægan áburð, ekki stærri bletti. Enda var þetta farið að sjá á, og lítur hið bezta út hjá þessum frumlega frumbyggja. Þarna undi hann líka öllum sínum stundum, að vor- og sumarlagi, er hann hafði afgangs frá aðkallandi störfum öðrum, lækningaferðum, móttökum og afgreiðslum gesta o. s. frv., og alt af eða langoftast einn, að bisa og bjástra, nostra og njarva eitthvað garðinum sínum til gagns og prýði. Síst væri því að undra eða lá, þótt þessi maður og kona hans hafi nú, og enda fyrir löngu, tekið ást- fóstri og trygð við hið umrædda nýbýli sitt, sem til er orðið, eins og nú er lýst, eftir um 40 ára látlaust, frumlegt og merkilegt samstarf þeirra, sem að mörgu leyti er lærdómsríkt og til fyrirmyndar. Það er og öldungis víst, að þeim hjónum hefur ekkert verið rík- ara í hug en það, að vera þarna alla æfi og vinna enn meira og fleira en þegar er gert, þótt margt og mikið sje, og síðan verða þaðan dauð út borin. En fyrir þetta virðist nú þó vera tekið, að nokkru eða miklu leyti. Ekki vantar þó enn áhugann og starfs- þrána, og enn eru eftir miklir starfskraftar hjá báð- um, þótt yfir sjötugt sjeu. En landnártismaðurinn er orðinn blindur á líkams- augunum, og situr nú eða reikar í myrkrinu um bjarta daga sem dimmar nætur með allar sínar mörgu hugs- anir og æfihugsjónir, en eiginkonan dygga og trygga heldur enn góðri sjón og miklu þreki, og er honum nú, eigi síður en jafnan fyr, alt í öllu. Börnin eru farin, hvert í sína lífsstöðu, eins og fyr segir, og hjónin mega nú heita alein eftir í hinum miklu húsa- kynnum, svo að eigi er sýnilegt, hvernig eða hve lengi þau geta úr þessu dvalið 'á þessu merkilega nýbýli sínu. En eins og flestir kunnugir munu þegar vita af framansögðu, eru hjón þessi: Ameríkufarinn, frum- bygginn og læknirinn Olafur Isleifsson og kona hans Guðríður Eiríksdóttir, frá Minni-Völlum á Landi, og þarf nú eigi framar að lýsa. Hefur nýbýlið þeirra verið nefnt Þjórsártún, en ætti miklu fremur að kenn- ast við stofnandann og heita Olafs-Ás eða Olafs Ðól, og má varla minna vera. En hvað á nú að verða um þetta »Ból«, sem þegar má kallast að mörgu leyti höfuðból, og gæti orðið það að flestu leyti, ef svo væri áframhaldið, sem byrjað er? Hver á nú að hirða um og auka hina stóru, efnilegu túnbletti? Hver mun nú verða til að halda við, hirða um og prýða enn meira jurta- og blómagarðana merkilegu, þegar þessi hjón eru þrotin eða farin, og landneminn gamli getur ekki lengur verið að grúska þar, hlúa að og hagræða blessuðum blómunum? Eða á þetta alt að leggjast í rústir og verða aftur að óræktar móum? Heyrst hefur, að hjónin vilji selja, en ekki, að nokkur vilji kaupa. Trúlegt er, að eigi verði selt hjer eða keypt í von um arðsama verslun, og ekki heldur um gistingar og greiðasölu þarna, þar eð komnar eru nú samkeppandi verslanir á næstu grös, austan og vestan, og lítil þörf orðin á gisti- og veitingastöðum, fleirum en nú eru, þarna með þjóðleiðinni, síðan bíl- ferðir hófust. Auk þess er ekki alt fengið með því, að einhver og einhver kaupi, að því er þennan stað
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.