Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 18

Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 18
18 O Ð I N N Trúr þjónn. Jeg veit, að það er landssiður að lofa sjaldan góða menn, fyr en þeir eru komnir undir græna torfu. Jeg ætla að bregða út af þeim ósið í þetta sinn, af því að jeg finn, að jeg myndi fyrirverða mig fyrir að segja þá fyrst sögu Páls Jónssonar á Holtastöðum, þegar ekki yrði þagað yfir henni lengur, þ. e. a. s. við líkbörurnar. Hann á þann drátt ekki skilið. Jeg hef fáa menn þekt merkari, og jeg veit ekki, hvort jeg hef orðið nokkrum samferða, sem hefur betur gert það, sem í hans valdi stóð, af því, sem lá hendi næst. Og þó hafa flestir litið yfir hann, eða gleymt honum, líkt og kjarngóðri nytjajurt milli trjenaðrá skrautblóma. Það sakar hann sjálfan ekki, en maður fær hins vegar hálfgerða klígju við að hugsa um kross- ana, sem hengdir eru á hina og þessa, enginn veit fyrir hvað, og minnist þess um leið, að þeirra, sem fórnuðu mestu til þjóðþrifa, er að engu getið. Hjer er annars saga Páls Jónssonar í stuttu máli. Hann er fæddur að Helliskoti í Mosfellssveit 21. nóv. 1853. Faðir hans var Jón Sigurðsson, sjómaður, og dó hann, er Páll var um það bil 3ja ára að aldri. Olst Páll því upp með stjúpa sínum, Jóni Halldórs- syni, bónda í Helliskoti, og lærði ungur að vinna, en ekki annað, er heitið gæti. 17 ára gamall fluttist Páll að Reykjum í Mosfelissveit og var þar á annað ár; var þá fóstri hans látinn og átti hann fáa að. Síðan var hann um 5 ára skeið í Garðahverfinu og stund- aði sjóróðra, og áfti þá hina verstu aðbúð til líkama og sálar, að því er hann sjálfur segir. Þá komst hann til Guðna Guðnasonar á Keldum í Mosfellssveit og var hjá honum í 3 ár. Á þeim tíma komst Páll í nokkur kynni við Hannes Hafliðason, er þá var ný- kominn frá Höfn með siglingaprófi. Vakti hann náms- hug hjá Páli á þeim fræðum, og fór hann nú að kynna sjer reikning eftir föngum, eftir bók Eiríks Briems, og tók einnig 40 tíma í sjómannafræði hjá Markúsi Bjarna- syni. Er það eina skólaganga Páls um æfina. En að hún var ekki til einskis, sjest m. a. á eftirfarandi sögu. Jeg hygg, að það hafi verið á einhverjum næstu ár- um, er Páll átti heima í Reykjavík og stundaði sjó- mensku, að hann var háseti á fiskiskútu. Fjekk hún eitt sinn mikið áfall í hafi, og tók þá út skipstjórann og nokkra háseta, en skipið rak, svo að dægrum skifti, að hvorki sá til lands nje lofts. En er birti í lofti, fjekk Páll reiknað út áttir af stjörnum; tók hann við stjórn skipsins og barg þannig þeim skipverjum, er eftir voru lífs. En nokkurt mark er það um lítillæti Páls, að þegar alda- og trúnaðarvinur hans, sjera Magnús Helgason frá Birtingaholti, löngu síðar lofaði þetta afrek hans, svaraði Páll: »Nei, það var sfýri- manninum að þakka, að hann trúði mjer«. — Ást- fóstri því, sem Páll tók við stærðfræðina á þessum árum, hefur hann og ekki brugðist fram á þennan dag. Hefur hann löngum glímt við ýmsar stærðfræði-þrautir og átti langan aldur brjefaviðskifti um þau efni við sjera Eirík Briem, og síðar dr. Olaf Daníelsson- Hann kynti sjer og fingrarím og notaði sjer það oft til hægðarauka. Jafnframt var hann hneigður til heim- spekilegs þankagangs, og varð gagnhrifinn af *Njólu« Björns Gunnlaugssonar. Varð það til þess, að á þeim árum, sem hann dvaldi í Rvík, gaf hann, ásamt Jóni Árnasyni landsbókaverði, út »Njólu« í annað sinn, og lagði til þess nálega aleigu sína eða um 300 kr. Síðan sendi Páll af sínum hluta hverjum hreppstjóra á landinu 1 eintak (og síðar 1—2) af »NjóIu«, með þessu ávarpi: »Jeg bið yður, hr. hreppstjóri, að gera svo vel að færa meðfylgjandi kver, »Njólu«, að gjöf snertir. Hjer þyrfti að fást kaupandi, sem hefði vilja, smekk og getu til að halda öllu vel við, auka og fullkomna prýðina og gagnsemina, sem þarna hefur svo vel verið stofnað til. Væri tilvinnandi fyrir stofn- endur og seljendur þessa Ólafs-Bóls, að selja lægra verði en ella, ef slíkur kaupandi kynni að bjóðast. Lang-líklegastur kaupandi til slíkra hluta mætti ætla, að væri »Ferðamannafjelagið«, sem þarna gæti fengið handa sjálfu sjer eða leigt öðrum yndislegan gist- ingar- eða sumarbústað, eða þá fjelag prýðilegs fólks, sem vill eða þarf að eiga sjer skemtilegan sumar- bústað, og má þá geta þess, sem er, að þarna eru nóg húsakynni fyrir 4 —5 fjölskyldur eða meira, í sumardvöl. Jeg get varla hugsað mjer sumarbústað betur settan en hjer, og fallegt og fjölbreytt er út- sýnið. Og hvað mundi verða góðum snyrtikonum og börnum þeirra indælla, hollara og uppbyggilegra á allan hátt, en að umgangast jurta- og blómagarðana þarna og bæta og prýða enn meira, eða fyrir karlana að hreyfa sig við að yrkja, verja og auka túnin, sem þarna eru komin, og fá svo laxveiðileyfi í Þjórsá þarna rjett hjá, ef fáanlegt væri, sem líklegt má telja? Guð blessi og gleðji gamla, blinda, síunga öldunginn og konu hans að Ólafs-Bóli. • Landi. (D
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.