Óðinn - 01.01.1936, Síða 20

Óðinn - 01.01.1936, Síða 20
20 Ó Ð I N N fýsilegt. Þá bauðst Páll til; sagðist ekki geta hugsað til, að börnin yrðu tekin frá móðurinni og sett niður. Þessu boði var tekið fegins hendi og fór hann að Iðu vorið 1904, og veitti búinu forstöðu með ekkjunni (Quðrúnu Markúsdóttur) til vorsins 1913. Þá voru börnin uppkomin öll, og fluttist þá ekkjan með þeim austur í átthaga sína. Páll vann kauplaust öll árin, og gaf af sínu fje til styrktar að auki, eftir þörfum, svo að stóru nam«. Þar sem Páll var alveg einstakur reglumaður í hvívetna, neytti hvorki víns nje tóbaks og var frá- munalega sparneytinn, græddist honum nokkurt fje á verkstjórnarárum sínum. Styrkti hann að vísu systur sína, Sigríði, mjög miklð; kom meðal annars upp húsi handa henni í Reykjavík (Klapparstíg 10). Seldi hann húsið og gaf um það ieyti allar eigur sínar í tvo opinbera sjóði, undir stjórn Stjórnarráðsins. Annar var að stofninum til 6000 kr., og heitir: Samgöngu- bótasjóður Páls Jónssonar, og er ætlaður til styrktar vegabótum. Var hann í árslok 1933 orðinn kr. 18253,47- Hinn sjóðurinn var upphaflega kr. 1400,00, og var ætlaður til styrktar ekkjunni frá Iðu, ef hún yrði þurf- andi. Mun og Sigríður, systir Páls, hafa notið hans. Sá sjóður var í árslok 1933 kr. 864,59. Enn tók Páll þátt í sjóðsstofnun með Birni bónda í Grafarholti. Þegar Páll fer frá Iðu, virðist honum þrent fyrir hendi: a) að vinna sjálfum sjer, b) að vinna einhverri nauðstaddri ekkju á nýjau leik, c) að gerast próventu- maður hjá einhverjum bónda með þeim hætti, að vinna honum eftir megni, en áskilja sjer í staðinn kr. 100,00 á ári til ekkjunnar á Iðu, meðan hún þyrfti þeirra með, og sjálfum sjer kr. 30,00 á ári til sjer- stakra þarfa. Kaus hann helst síðasta kostinn, og stóð til, að hann rjeðist hjá Birni í Grafarholti, en eigi varð það úr, heldur fluttist hann að Lækjamóti í Víðidal til Margrjetar húsfreyju, en eftir lát hennar, 1917, að Holtastöðum í Langadal, til Guðríðar dóttur hennar og jónatans ]. Líndals manns hennar. Og þar dvelur hann síðan. Þótt 30 kr. á ári myndu ekki endasí mörgum til mikils, hefur Páll þó getað miðlað talsverðu hin síðari ár. Þannig gaf hann eftir ófriðinn mikla kr. 100,00 til styrktar börnum í Austurríki og kr. 70,00 til Skaft- fellinga eftir Kötlugosið, um kr. 30,00 tvisvar til fá- tækra bænda, og smáupphæðir iðulega um jólin til fátækra barna. Þannig má sá mikið, er vill, og sann- ast hjer, sem oftar, að hinn fátæki gefur oft mest. Páll hefur unnið flest algeng störf á Holtastöðum fram á þennan dag. Hann var þar og lengst af ferju- maður og aukapóstur upp á Laxárdal. Er ráðvendni hans viðbrugðið í þeim sökum. T. d. var hann ætíð ófáanlegur til að taka ófrímerkt brjef eða nokkurn hlut burðargjaldslaust af nokkrum á Holtastöðum, er hann fór póstferðir, enda þótt hann væri hjú ]óna- tans og færi ferðirnar að sjálfsögðu á hans ábyrgð. Og ekki ferjaði hann svo hund yfir ána, að hann gerði þess ekki grein. — Enn skal ein saga sögð af grandvarleik hans, eftir sögn sjera Magnúsar Helga- sonar: »Þegar Páll var á Iðu, skrifaði hann einu sinni brjef til kunningja síns í Ameríku og sendi að Skál- holti í leið fyrir póstinn. Daginn eftir kom Páll upp að Skálholti, til þess að rífa upp brjefið og leiðrjetta nokkuð í því. Hann hafði getið þess í brjefinu, hve oft hefði verið messað í Skálholti síðasta ár, jeg man ekki, hvort það var 5 eða 6 sinnum; en eftir að hann hafði sent brjefið, komst hann að raun um, að mess- urnar höfðu orðið einni fleiri, en hann skrifaði. Slíkri missögn vildi Páll ekki gera sig sekan í, og fór þegar á eftir brjefinu, til að leiðrjetta þetta«. Páll hefur nú um mörg ár verið meðhjálpari í Holtastaðakirkju og rækt það starf af sömu alúð sem hinir fornu leikmenn, er vönduðu jafnt hið minsta sem hið mesta í guðshúsinu, minnugur þess að Guð sjer alt jafnt. — Þannig er saga Páls ]ónssonar á Holtastöðum. ]eg veit, að hann hefur ekki fengið neina opinbera viðurkenningu, þó að hann hafi unnið ríkinu eins vel og dyggilega og raun ber vitni. Því að slíkir menn eru salt þjóðfjelagsins. ]eg veit að gatan hans er að gróa upp, þó að hann sje jafnvel ekki enn kominn í áfanga. En jeg veit líka, að það eru blóm í sporum hans. Og af því að hann hefur þvegið fætur annara, veit jeg, að hann á síðar von mikils fagnaðar. ]eg hugsa alt af til hans með aðdáun. Vel sje þeim, er kvitlar eins vel reikningana hjerna megin og er jafnríkur af því, sem hann hefur gefið, og hefur svo hreinan skjöld í hvívetna. Guð gefi honum góða heimför. Gunnar Árnason frá Skútustööum. Ljóðmæli sjera Matthíasar Jochumssonar eru nú að koma út í heildarútgáfu, á kostnað Magnúsar Matthíassonar heildsala, sonar skáldsins. — Munu þau verða fullprentuð fyrir næstu jól. —
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.