Óðinn - 01.01.1936, Síða 33

Óðinn - 01.01.1936, Síða 33
33 Ó Ð I N N hvatt til þess, að þau hjónin tækju það að sjer. En ekki mun sú atvinna hafa átt mjög við skap Jóhann- esar, og Ijetu þau því af veitingasölunni 1896. Á því ári reisti Jóhannes sjer vandað hús, sem þau bjuggu í jafnan síðan, og hefur það alment verið og mun enn vera nefnt pósthúsið. Sfundaði hann þar síðan, sem áður er sagt, iðn sína, samhliða þeim opinberu störfum, sem hann hafði á hendi og nokkuð mun hjer á eftir verða sagt frá. lilóðust þau störf á hann fleiri og fleiri, því að flesfu var til hans beint, sem til þurfti að vanda, og brást hann ekki því trausti, sem til hans var borið. Árið 1889 varð Jóhannes hrepp- stjóri og ári síðar kosinn í hrepps- nefnd, og gegndi hvorutveggja því starfi til dauðadags svo vel, að hann ávann sjer traust bæði yfirboðara og annara, sem við hann átfu að skifta. Oddviti hreppsnefndar var hann frá 1896 til 1928, er hann mun fyrir aldurs sakir hafa óskað, að yngri maður tæki við því. Þessi störf, sem bæði eru vanda- söm, ef vel eiga að vera unnin, ekki síst oddvita- starfið, erfitt og einatt vanþakklátt, er mjer óhætt að fullyrða, að Jóhannes leysti af hendi svo vel sem best verður á kosið. Hafði hann til þess alla hæfileika, áhuga á að láta öll störf sín fara vel úr hendi, og rótgróna ræktarsemi við sveit sína og bygðarlag, að stuðla sem best að heill þess og sóma í hvívetna; ritfær og reikningsglöggur í besta lagi, ákveðinn og einbeittur skapmaður, en þó sanngjarn, mannúðlegur og réttsýnn. Hinn 14. mars 1896 stofnuðu 20 manns sparisjóð fyrir Vestur-ísafjarðarsýslu með heimili á Þingeyri. Var Sigurður Magnússon, læknir, fyrstu þrjú árin gjaldkeri sjóðsins og reikningshaldari. En þegar hann fluttist til Patreksfjarðar, var Jóhannes kosinn gjaldkeri sjóðsins 7. júlí 1899 og var það síðan til dauðadags og aðal- forráðamaður hans, og hefur sjóðurinn dafnað ágget- lega undir stjórn hans og verið til mikils gagns og hagsmuna fyrir hjeraðið. Árið 1897 komu barnaeigendur á Þingeyri á fót barnaskóla og var Jóhannes upphafsmaður að því, og hafði ásamt nokkrum öðrum forgöngu fyrir stofnun skólans. Var í fyrstu kent í prívathúsi, en síðan í þinghúsi hreppsins, þangað til skólahúsið var reist. Hefur síðan staðið skóli á Þingeyri og var Jóhannes kosinn í skólanefnd 1899, og frá því, er skólaskylda var lögleidd 1908, var hann formað- ur skólanefndar þangað til 1923. Þá tóku yngri menn við umsjón skóla- mála. Um 1898 var farið að halda svo- nefnda þing- og héraðsmálafundi í Vestur - ísafjarðar- sýslu. Voru kosnir á sveitarfundi 3 menn í hverjum hreppi til að mæta á þeim fundum. Mun þessi sýsla hafa verið hin fyrsta á landinu eða eina, sem haldið hefur stöðugt á hverju ári slíka fundi. Jóhannes var hinn helsti hvata- maður til þessara funda og hefur frá upphafi setið á þeim öllum, kosinn til þess í einu hljóði á sveitarfundum, nema hinum síðasta, er var hinn 36., og haldinn í mars 1935 í Súgandafirði; heilsu sinnar vegna og að læknisráði gat Jóhannes ekki sótt þann fund. Á fund- unum var hann ávalt frá upphafi valinn fundarstjóri, þangað til hann aldurs vegna baðst undan því og var eftir það varaforseti. Um gagnsemi þessara funda verður hjer ekki dæmt, en þó má telja víst, að þar hafi komið frumkvæði að ýmsu, er að framkvæmd hefur orðið í hjeraðs- og landsmálum, og Jóhannes Olafsson átt þar margar tillögur. Haustið 1898 var Jóhannes skipaður póstafgreiðslu- maður á Þingeyri, og hjelt því starfi einnig til dauða- dags, þótt kominn væri þá yfir aldurstakmark opin- berra starfsmanna; þykir mjer og sennilegt, að ekki hafi skort hjá honum á reglusemi í starfinu. Er mjer sagt, að hann hafi verið elsti póstafgreiðslumaður á landinu. Sáttanefndarmaður var Jóhannes skipaður 1903 og gegndi því starfi til dauðadags. Sama ár var Jóhannes kosinn alþingismaður, hinn Jóhannes Ólafsson. Helga Samsonsdóttir.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.