Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 41

Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 41
Ó Ð I N N 41 um í dynjandi steypibaði út um annan enda svefn- skálans og inn um hinn, þurkuðu sig og klæddust; fengju svo góðan morgunverð og færu síðan út í kirkju til morgunbæna. Síðan væri liðinu raðað upp til »Parade« og dagskrá lesin upp, og síðan færi hver 10 drengja flokkur, með foringja sínum, þangað sem þeir ættu að vinna, og ynnu í skerpu tvo tíma. Svo væri öllu liðinu blásið heim kl. 11, og tæki þá hver drengur sín sundföt og færu niður að víkinni, sumir til að synda, sumir að róa og sigla á smábátum um pollinn, alt eftir föstum reglum. Svo kl. 12 miðdags- verður og hvíld á eftir. Hl. 2-4 síðd. vinna, svo nón- bítur og síðan leikir, knattspyrna á tveim eða þremur völlum, og ýmsar aðrar íþróttir æfðar. Svo kvöld- verður, þar næst samvera með söng og hljóðfæra- slætti, erindi um fræðandi efni, síðan stuttar kvöld- bænir og svo í rúmið kl. 9]/2. — Þannig hafði jeg útmálað lífið hversdagslega í hinum stóru römmum, og myndað mjer hugmyndir um einstaka drengi eftir skaplyndi þeirra, og spunnið sögur um marga ein- staklinga, suma erfiða og gallagripi, hvernig fara ætti að þeim hverjum fyrir sig o. s. frv. — A veturna hugsaði jeg mjer að hafa lýðháskóla fyrir unga menn. Jeg hugsaði mjer ræktun jarðarinnar og tún aukið upp í að ala 150 kýr, og þar fram eftir. — Jeg skemti mjer við þessar myndir svo oft og á ýmsan hátt, að þetta urðu nær lifandi sýnir fyrir mjer. Eina nótt í byrjun maí, á heimleiðinni, var jeg að skemta mjer við að hugsa mjer, hvernig jeg fengi fjárafl til als þessa. Jeg þóttist vera á járnbrautarferð í Ameríku og í klefanum hjá mjer var afar-viðmóts- góður maður, sem jeg komst í viðræður við, og fræddi jeg hann á mörgu um Island, og svo kom, að jeg lýsti fyrir honum hugsjónum mínum um svona stofnun. Við komumst svo til Chicago og þar skildu leiðirnar; en eftir nokkra daga var jeg boðinn til hans, og kom þá í ljós, að þetta var margfaldur miljónamæringur og gaf hann mjer nokkrar miljónir til framkvæmdar hugsjón minni. — Jeg var svo niðursokkinn í þessa sögu mína, að mjer þótti leiðin alt of stutt, er heim var komið; en er jeg kom inn í stofu mína, lá brjef á borðinu; það var frá Ameríku, ekki þó frá neinum miljónamæring, heldur frá nafna mínum, sjera Friðriki Hallgrímssyni. Hann tjáði mjer, að á sambandsþingi Bandalaga íslensku kirkjunnar hefði verið ákveðið að bjóða mjer til Ameríku, til þess að ferðast á milli safnaðanna og starfa fyrir Bandalögin, en það eru hin kristilegu ungmennafjelög íslensku kirkjunnar þar. — Þetta kom eins og inn í hugsanir mínar á leiðinni heim, og mjer fanst eins og í því gæti legið meira en það eitt, að koma til Ameríku. í marga daga velti jeg þessu máli fyrir mjer. Fanst mjer þetta mjög girni- legt, og langaði til þess í aðra röndina, en hugsunin um að skilja við starfið hjer á þeirri blómaleið, sem það var að komast á, varð mjer samt ærið þung. Jeg leit til baka yfir starfið frá því er jeg kom heim, 1908, og hitti alt í kalda koli; ef nú ætti að fara eins; mig hrylti við þeirri tilhugsun. Jeg leit yfir þennan blómgunartíma, sem liðinn var. Jeg sá blóma ung- lingadeildarinnar, og hve mikið hún hafði gefið fje- laginu af áhugamiklum starfskröftum; jeg sá vöxt og viðgang yngstu deildarinnar og hið ágæta »UrvaI«, ungt að vísu, en fyrirtak að áhuga og lífi. Jeg hugs- aði um knattspyrnufjelögin »Val« og »Hvat«, gátu þau haldið strykinu og 7 ára áætluninni, þeirri, að keppa bara innbyrðis og leika vegna listarinnar sjálfrar, og geta svo 1918 valið úr bestu krafta þeirra beggja og sett reglulega gott lið á opinbert kappmót? Jeg leit á »Væringjana«, hvernig færi um þá, ef jeg yfir- gæfi þá á fyrsta ári þeirra. Jeg leit á jarðræktina, við höfðum fengið erfðafestuland á hrjóstrugum stað inn víð þvottalaugar, eitthvað 3 dagsláttur að stærð, og þar höfðu aðallega yngri aðaldeildarmenn starfað á hverju fimtudagskvöldi á sumrin, undir hinni ágætu forystu Guðmundar Bjarnasonar klæðskera. Jeg var ekki hræddur um þá grein. Jeg var heldur ekki hræddur um aðaldeildina, því jeg vissi, hvílíkan kraft vjer áttum í sjera Bjarna og stjórninni, eins og hún nú var samsett. — Mátti jeg fara frá þessu öllu? Svo kom sú hugsun: Ef til vill á jeg að fara! — Jeg hafði oft sagt við vini mína: »Jeg er hræddur um að fjelagið verði aldrei sterkt, ef jeg er alt af með því. Það hlýtur að reka að því, að jeg verði að fara, svo að þið getið þroskast til að sjá, að jeg er ekki nauðsynlegur*. Það var þá ekki svo lítið af þeirri hjátrú, að jeg yrði að vera með í öllu, og jeg var oft hræddur um að að því ræki, að jeg yrði málefn- inu til hindrunar. — Mjer hafði oft dottið í hug, að Guð yrði að taka mig burtu úr starfinu, annaðhvort alveg eða þá að fjarlægja mig með löngum sjúkdómi. Nú skaut þeirri hugsun upp hjá mjer, að ef til vildi væri Guð með þessu að stía mjer burtu, svo að hinir gætu sjeð, að alt gæti gengið án mín. En jeg vildi umfram alt vita með vissu, hvað Guð vildi í þessu efni. Jeg var því ekki bráður á að gefa svar vestur. Jeg þurfti líka að útvega mann í minn stað. Jeg kom auga á einn. Það var Páll V. Guðmundsson (nú Páll Kolka læknir). Hann Ias þennan vetur utanskóla fyrir tvo bekki. Mjer fanst hann langlíklegastur til þess að geta komið í minn stað. Hann var svo nákunnugur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.