Óðinn - 01.01.1936, Page 43

Óðinn - 01.01.1936, Page 43
Ó Ð I N N 43 með togara, »Eggerti Ólafssyni*, sem fara átti á laugardag þann 15, þá í vikunni. — Mjer þótti vænt um aö leggja af stað í þænavikunni, og var viss um að það yki mjer fararheill. Frh. ® Sýnin í Pörtschack.'1 Eftir sjera Friðrik Friðriksson. Það var svartnætti þá, er jeg sýn eina sá; hún kom sólbjört, er heima jeg krjúpandi bað. Alt var heillandi hljótt, þessa heilögu nótt fann minn hugur þann veg, sem jeg Ieitaði að. Og jeg sá yfir svið, hvar einn riddari reið sínum rösklega gangvara, búinn í stríð. Alt hans herklæða skart var skrautlegt og bjart, og sem skínandi sól var hans ásjóna fríð. Og það sverð, sem hann bar, eins og eldblossi var og jeg undraðist, hvernig það náttmyrkrið klauf. Er við geislanna glans birtist gunnfáni hans, kvað við gleðióp margfalt, sem þögnina rauf. Og jeg sá yfir svið, þar sem Ijósmöttlað lið gekk í ljómandi fylkingum, sveit eftir sveit. Það var ungmenna her, sem þar safnaði sjer, er hann sólbjarta gunnfánann riddarans leit. Og í dýrð þessa geims sá jeg drengi als heims eins og daggperlur speglandi himinsins ljós. 1) Kvæðið var ort á ensku, á alþjóðamóti K. F. U. M., sem haldið var í júnf 1923 fyrir starfsmenn unglinga- og yngstu deilda fjelagsins. Mótið var haldið í Pörtschack, litlum bæ í Kárnten í Austurríki; voru þar yfir 800 fulltrúar frá 53 löndum og stóð mótið í 12 daga. Seinna var kvæðið prentað í alþjóðablaði K. F. U. M. og endurprentað í ýmsum K. F. U. M.-blöðtim í Englandi og Ameríku, og það hefur verið þýtt á dönsku. Þar var æska hvers lands undir eldmerki hans, sem er alheimsins vörður, og söng honum hrós. Það var dásamleg ferð, og hver drengur fjekk sverð; það var Drottins vors }esú Hrists lifandi orð. Þeirra brynja var trú, sem ei bugast, og nú skal til blessunar sigra á mannanna storð. O, hve dýrðlega skein þeirra hrifning, svo hrein eins og himinsins stjarna skin augunum frá. Vfir hindranir heims til hins himneska geims, upp að hástóli drottins var öll þeirra þrá. Og hve fagurt mun frá himins sölum að sjá vorn hinn svífandi hnött með sín ríki og lönd, þá öll æskunnar sveit hefur unnið sín heit, gengið einhuga Ijósanna föður á hönd. Og jeg sá yfir svið, hvar hið sólbjarta lið hinna syngandi engla í fylkingum leið. Þessi himneska sveit, sem oss hjálpar, öll leit upp til hásætis Drottins og skipunar beið. Og hið helgasta svið blasti hug mínum við, og hins heilaga ásýnd leit starfsvið vort á. En jeg misti þá mátt, jeg var hrifinn svo háft, og jeg hneig eins og dropi í ljósgeimsins sjá. Þ. G. þýddi. (D Jónas Hallgrímsson. Fimla og síðasta bindið af ritum Jónasar Hallgrímssonar, sem Matthías Þórðarson þjóðminja- vörður hefur safnað til, en ísafoldarprentsmiðja gefið út, er nú nýlega komið, og er í því m. a. æfisaga Jónasar eftir Matthías, miklu ítarlegri en þær æfisögur hans, sem áður hafa verið prentaðar. Tll þess að safnið sje fullbúið, vanta þó enn skýringar og athugasemdir við öll bindin.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.