Óðinn - 01.01.1936, Síða 46
46
Ó Ð I N N
starfi þeirra beint á þá leið. En nú munu stefnur í
skólamálum vera mjög breyttar frá því, er var fyrir
50 árum. Tekið meira tillit til sjergáfna og eðlisfars
hvers einstaklings. Menningin (Kulfur) gengur ótvírætt
í þá átt, að gera muninn á mönnunum meiri og sí-
vaxandi. Kröfur þær, sem gerðar eru til einstakling-
anna, fara einnig vaxandi. Meðal villimanna var mun-
urinn næsta lítill á mönnunum. Munurinn á húsbónd-
anum og vinnumanninum var heldur ekki mikill í
gamla daga. En munurinn t. d. á vjelfróðum og verkfróð-
um nútíma-forstjóra stórs atvinnufyrirtækis og óbreytt-
um verkamanni er næsta mikill. Aldrei hefur verið
meiri þörf afburðamannsins en nú.
En sje svo, að hæfileikinn gangi í arf, frá manni til
manns, fer þá mannkynið batnandi, að sama skapi og
menningin vex og gerir stærri kröfur til þess? Og
hvaða lífsmögn eru þar að verki? Er ekki líklegt að
náttúran, enn í dag, sjái fyrir þessu, haldi áfram að
skapa afburðamennina, gegnum náttúrlegt úrval, eins
marga og þörf er á? Utlitið er, eins og stendur,
ekki gott. Eins og áður er bent á, virðist framundan
fremur blasa við rýrnun mannkynsins, þ. e. mannvits-
ins. Vjer megum ekki gleyma sögu hinna gömlu,
staðbundnu menningarríkja, svo sem Egifta, Kaldea,
Indverja og Kínverja, og löngu síðar Grikkja og
Rómverja. Þessi ríki áttu öll sjerstæða menningu. —
Kyn eftir kyn ruddu sjer leið inn um hlið menning-
arinnar, er áttu sinn blómaaldur, óx hröðum fetum,
en hnignaði eins fljótt, af því manndómur sá þvarr,
er hana hafði reist. Þeim hæfu fækkaði um leið og
þeim óhæfu fjölgaði, eins og öflugt náttúrulögmál
væri að verki; þar til menningarlaus skríll, sem alla
tíð hefur verið andstæður menningu, stóð á rústum
þessara ríkja1)- En hinn bjarti fáni, sem þau höfðu lyft,
fjell þó aldrei til jarðar. Einn þjóðstofn eða kynþáttur
tók við af öðrum, og hjelt uppi merkinu. En þannig
getur það ekki lengur haldið áfram. Hin staðbundna
menning fornþjóðanna er nú sameinuð í einni alheims-
menningu. Fyrir það er hún svo voldug, að hún hef-
ur að baki sjer það, sem heimurinn allur eða jörðvor
á af vitsmunum og hæfileikum; — en þaðerþáeng-
in þjóð til eða kynflokkur, að taka upp menningar-
fánann, ef hann fjelli úr höndum þessarar kynslóðar,
er nú heldur honum upp. Það eru ekki lengur til
neinar þróttugar og göfugar »barbara«þjóðir með
óveiklaða krafta, til þess að taka upp merkið. —
Ef menningin á að halda áfram, verður hún að
1) Sbr. Lodhrup Stoddard: Þess veröur að geta, að sum
þessi gömlu menningarríki voru lögð í rústir með hernaði
„barbara". Höf.
varðveita alt það besta og þróttugasta í sínum eigin
kynstofni.
Það er tvent, sem hin vestræna menning hefur
fram yfir alla aðra menningu, fyr eða síðar. Það er
vísindaleg þekking og rannsóknarandi. Vjer höfum
fundið með því mörg þau leyndu sannindi, sem for-
feður vorir höfðu ekki hugmynd um. Og þráin eftir
því að höndla sannleikann hefur aldrei verið slík. Eldri
tímar áttu sína spámenn og skáld. Af vörum þeirra
átti sannleikurinn að birtast. — Vorir tímar krefjast
vísindalegra staðreynda. Aðrir tímar áttu sína helgi-
menn og píslarvotta, — er ekki óttuðust dauðann,
og fórnuðu Iífi sínu fyrir það, er þeir álitu satt. Vorir
tímar eiga einnig slíka menn. Menn, sem þrá það eitt,
að leita að og finna ný sannindi; að offra öllu lífi sínu
fyrir vísindin; að opna menningunni nýjar leiðir og
útsýni.
En þetta er að eins úrval og kjarni mannkynsins.
Verði hann kvalinn eða kæfður, stöndum vjer aftur,
er minst varir, í ólgandi hafi dýrslegrar villimensku.
Afburðamennirnir eru tiltölulega fáir. Þeirra gætir
löngum lítið, og þorri manna gleymir þeim og verk-
um þeirra, er þeir hlusta á þá, sem æpa á strætum
og gatnamótum. A þá, sem kunna að nota sjer ástríður
manna, hleypidóma og heimsku. Það er nú svo, að
fjöldi manna er lítt hæfur til að meta ný sannindi,
eða æskja eftir sívaxandi menningu. Þeir kunna ekki
að meta hana, og vilja ekki bera byrðar hennar,
Hinn lægsti og lítt þroskaði lýður, sem er allfjölmenn-
ur hjá flestum þjóðum, æskir ekki eftir framþróun,
heldur einmitt hið gagnstæða. Hann vill rífa niður og
leggja í rústir, það sem jafnvel fleiri kynslóðir hafa
verið að byggja. — Það er frá þessum vanþroskaða
hluta mannanna og samtökum þeirra, sem menningu
þessara tíma er mest hætta búin. — Þó þetta eigi
ekki við íslendinga, nje Norðurlandaþjóðir aðrar —,
enn sem komið er. Æði stríðs og als konar byltinga
má að m. k. telja þeim fjarlægt enn.
III.
Menning (Kultur) er kaliað blóm mannkynsins. — í
rauninni má telja það enn nýtt og þróttlítið hugtak.
Það eru að eins átta eða tíu þúsund ár síðan fyrsti
bjarmi menningarinnar gerði vart við sig. Þessi tími
kann nú að sýnast töluvert langur; en hann er ekki
langur, þegar þess er gætt, að bak við hann liggur
afarlöng nótt villimenskunnar, sem vísindin telja alt
að hálfri miljón ára. Þetta er frá þeim tíma að apa-
maðurinn skreið út úr myrkri frumskóganna, og fór
að greina sig frá öðrum dýrum. En ferð mannkyns-