Óðinn - 01.01.1936, Page 48

Óðinn - 01.01.1936, Page 48
48 0 Ð I N N Frú Octavia Smith andaðist að heimili sínu í Reykjavík þann 7. des. sl. ár, að eins 49 ára gömul. Var þar mikill harmur kveðinn að vandamönnum hennar og vinum. Odavia sál. var fædd á Seyðisfirði þann 15. apríl 1886. Hún var dóttir Carls ]. Grönvold, er þar var verslunarstjóri, og síðar á Siglufirði, og konu hans Vil- borgar jónsdóftur. Olst hún upp hjá foreldrum sínum, en síðari æskuárin var hún off langvisfum hjá þeim hjónum Vigfúsi Sigfússyni, hóteleiganda á Ak- ureyri, og konuhans Maríu, sem var amma Odaviu. — Grönvold, faðir hennar, var sonur frú Maríu af fyrra hjónabandi hennar. Ung giftist Octavia Paul Smith, verkfræðingi, norskum manni, sem kom hingað til lands samtímis Forberg, og var hans önnur hönd við að koma upp símakerfinu hjer á landi; tók hann trygð við Island, og er nú búseftur í Reykjavík, sem kunnugt er. Octavia sál. var ein af fríðustu og tilkomumestu konum þessa lands, há og vel vaxin, fremur föl yfir- litum; fyrirmannleg var hún í framkomu og vakti eftir- tekt, hvar sem hún fór, með glæsimensku sinni; ljúf- mannleg var hún í viðmóti og vildi öllum gott gera. Húsmóðurstörfin leysti hún snildarvel af hendi, meðan henni entist heilsa, kunni kvenna best til hannyrða, var vel gefin, og einkar vel ljet henni að gera heim- En nú er komin önnur öld. Helgihjúpnum er nú svift af kynferðismálunum. Fá mál eru nú meira rædd. Þau eru komin inn í þingsalina. Þjóðnýtingar-stefnan ryður sjer ört til rúms eða afskifti þings og stjórnar því nær alira mála. Lög eru nú komin í mörgum ríkjum til hindrunar arfgengum sjúkdómum o, fl. Sterilitets-lög — þ. e. heimild stjórna til þess að gera menn ófrjóa. Um þetta mál hafa nú verið flutt hjer 4 erindi við háskólann, undanfarna daga, af hr. Eiði Kvaran, sem er docent við þýskan háskóla. Hann hefur meðal ilið vistlegt og fagurt. — Þau hjónin eignuðust þrjá syni, sem nú eru upp komnir, og eiga þeir á bak að sjá ástríkustu móður. Vanda- og vinafólk frú Ocfaviu, og allir þeir, sem kynni höfðu af henni, finna sárt til þess, hve stórt skarð er höggvið í vinahópinn við fráfall hennar, og biðja Guð að blessa hana og minningu hennar. Vínkona. Guðrún á Ðálkastöðum. Veður gnýja vora þjóð, víða hálka’ í tröðum. Nú er hnigin Guðrún góð á gömlu Bálkastöðum. Hafa mundi’ af harmi sýrst hugur bernsku minnar. Sú var konan djásnadýrst drotning gestrisninnar. Nú var eigi þjóðbraut þó þar um Bálkastaði; umferðin samt yfrið nóg, einatt þröng í hlaði. Kaupalýður, kirkjufólk krókinn af ei sneiddi, eins og börn að brjóstamjólk bærinn gesti seiddi. Hvar sem þjettust ösin er ærið þarf til neyslu, hleifa og drykk, — hvað haldið þjer, í hálfrar aldar veislu? Tíðrætt er um töframann, er tók sjer ljett um auðinn, en fallega drýgðu fleiri’ en hann fiskana og brauðin. Kærleiks afgang — karfir tólf — konan skráð mun eiga og inn á drotna dómþings-gólf djarflega ganga mega. jak.Thor. annans bent á þá miklu hættu, er grúfði yfir oss af voðalegum arfgengum sjúkdómum, glæpa-tilhneig- ingu og alls konar úrættun. Vjer eigum þar sam- merkt við aðrar menningarþjóðir. Enda hefur heyrst, að frumvörp til laga, eins og þau, sem hjer hefur verið bent á, mundu verða lögð fyrir næsta þing. — En vel hefði farið á því, að málið hefði verið kynt hér áður, bæði gegn um útvarpið og á annan hátt. 20. október 1936 Jýn Jónsson Gauti. Octavia Smith. ®<2®

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.