Óðinn - 01.01.1936, Síða 57

Óðinn - 01.01.1936, Síða 57
Ó Ð I N N 57 Ættjarðarsöngur. Menn kenna vora ey við ís. — En eldi mögnuð hátt hún rís úr hafsins djúpi voldug, væn, á vetrum hvít, á sumrin græn. Við skulum syngja henni hrós um hennar vetra norðurljós, og vorsins björtu, bláu tjöld, og blíð og fögur sumarkvöld. Og hennar fríðu fjarða svið, og fossa söng og lækja nið, og háan, víðan heiða sal, og hýran hvamm í mörgum dal. Og grösug engi’ og grænan völl, og gnípum skreyttu, háu fjöll. Þar uppi sindrar sól á ís; í sveitum niðri hverinn gýs. Og eyjar byggir æður mörg. A ystu nesjum fuglabjörg úr legi rísa’ af lífi kvik, með ljettra vængja fjaðra blik, Og alt í kring við augum hlær hinn auðgi, víði, bjarti sær. Við elskum fjöll þín, fjörð og sand og foss og dalagrund, vort land. Þ. O. V. Framanritaðar línur eru að eins sundurlaust hrafl um hið helsta úr lífi og starfi þess mæta manns, sem þær eru helgaðar. ]eg hef stiklað á stærstu steinun- um eingöngu. Störf þau, er Ólafur vann í þarfir hins opinbera, hef jeg engin nefnt. En eins og að líkum Iætur, þá komst slíkur hæfileikamaður, sem Ólafur var, ekki undan því að gegna mörgum ábyrgðarstörfum í hrepps- og sýslufjelagi sínu. Gegndi hann um mörg ár opinberum störfum í Patrekshreppi, og var á þeim störfum hans, sem öðrum, sama snildarbragðið. Fyrir störf sín og framtak, í þarfir lands og þjóðar, var hann sæmdur riddarakrossi íslensku Fálkaorð- unnar árið 1924. — Áður hafði Frakklands-stjórn sæmt hann frakknesku heiðursmerki, eins og fyr er getið. Var hann vel að þeirri virðing kominn. En þó ætla jeg að hitt hafi glatt hann meir, að sjá viðgang Vatn- eyrar og not þau, er aðrir höfðu af framtaki hans, en virðingarmerki valdhafanna, því að hann var veru- Ieikans maður, en aldrei fyrir það að sýnast. * * * * Vjer Patreksfirðingar munum lengi minnast Ólafs. Og þótt hann sjálfur sje oss ekki lengur sýnilegur, þá lifa verkin hans, og þau munu tala sínu máli leng- ur og betur en nokkur minnisvarði reistur á dáins gröf. Æfi hans var óslitinn starfsdagur, að heita mátti. Og störf hans voru slík, að öðrum máttu til góðs verða. Seinasta árið, sem hann lifði, kendi hann nokkurs sjúkleika, en oftast gekk hann að störfum sínum, þar til um síðustu áramót, að hann fjekk ekki lengur af borið vegna svefnleysis og ýmiskonar annarar vanlíðunar. Hinn 21. jan. síðastliðinn fór hann tíl Reykjavíkur, að leita sjer lækninga við meini sínu. En sú ferð hans var hin síðasta frá Vatneyri. Sunnudaginn 2. febr. að morgni ljest hann af hjartasjúkdómi í St. Jósepsspítala,' að Landakoti í Reykjavík. Lík hans var flutt heim og jarðsungið frá Eyrarkirkju í Patreksfirði miðvikud. 12. febr. síðast liðinn, að meira fjölmenni viðstöddu en áður hafði þekst á Eyrum. Þótt sú ósk hans rættist ekki, að hann fengi að deyja á Vatneyri, þá var þó öllu lífi hans lifað þar og fyrir þann stað. Og í firðinum sínum heima fjekk hann að lokum beinin að bera. Hvila þeir nú hlið við hlið í Eyrarkirkjugarði feðgarnir, Ólafur og Kristinn. Hver sú þjóð, sem á marga menn slíka sem Ólaf- ur var, er vel á vegi stödd. Hann var elju- og atorku- maðurinn mikli, gullneminn, sem altaf er að verki og beitir hug og hönd til að notfæra sjálfum sjer og öðrum þau óþrotlegu gæði, sem land og sjór hafa í sjer fólgin. Hann hefur sjálfur reist sjer þann minnisvarða, sem óbrotgjarnastur er, minnisvarða mikilla verka og góðra. f þá sömu átt stefndi og sonur hans, Kristinn. En hans naut aðeins of skamt við, að oss vinum hans þótti. Minning þeirra feðga mun lifa í hugum manna hjer vestra, því „Orðstírr deyr aldrigi hveims sjer góðan getr“. Einar Sturlaugsson frá Snartartungu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.