Óðinn - 01.01.1936, Síða 71

Óðinn - 01.01.1936, Síða 71
Ó Ð I N N 71 skemti mjer við að horfa á hafrótið. — Matur var ágætur og lyst mín góð, eins og vant er á sjó, en einn daginn var okkur ekki fært að fara affur í káetu til að matast og brautst einn skipverji, albrynjaður, fram tii okkar og færði okkur harðfisk og eitthvað að snarla. Síðdegis fór jeg aftur fyrir turninn og sá þar sliga liggja niður í skipið; jeg klifraði þar niður og komst ofan í kolarúmið, þaðan inn í vjelarúmið og svo alia leið aftur í káetu. Þar var tekið vel á móti mjer og settar fram ríkulegar vistir, þótt ekki væri matmálstími. Eftir góða máltíð fór jeg sömu leið til baka, og þóttist skipstjóri mig úr helju heimtan hafa; hann var orðinn hálfhræddur um að jeg hefði farið mjer að voða. — Suður með öllu Skotlandi og Englandi að austanverðu fengum við stórviðri á móti, og seinkaði það ferðinni, svo að vjer komum ekki til Grimsby fyr en á föstudagsmorgun. Nú fanst mjer fyrst æfintýrið vera að byrja. Tollþjónn kom á skip, og með því að jeg átti þar í land að fara, sýndi jeg honum rækilega pjönkur mínar. Mjer höfðu gefist vindlar drjúgum við burtförina úr Reykjavík, og átti jeg eítir 130 stykki af þeim. Tollþjónninn þorði ekki að ráða fram úr því vandamáli, hvað gera ælti við vindlana, og stakk upp á því, að jeg kæmi með sjer upp á tollbúð. Þar var sett ráðstefna um málið; þeim fanst hart að setja toll á vindlana, þar sem jeg yrði að eins einn dag eða svo í landinu, en að sleppa mjer ótolluðum var heldur ekki gerlegt. Eftir allmiklar málalengingar var komist að þeirri niðurstöðu, að jeg skyldi borga toll af þeim í Grimsby, og fá hann endurgoldinn í Liverpool. Þetta varð svo að ráði; jeg borgaði 9 shillinga, og fjekk ávísun til tollbúðar- innar í Liverpool og pakkann innsiglaðan. Á toll- búðinni var jeg spurður, hvort jeg hefði fengið far- seðil til Ameríku, og hvort jeg þekti nokkurn »agent«, og er jeg neitaði hvorutveggja, vísuðu þeir mjer á sænskan »agent«, sem væri mjög áreiðanlegur maður, og ljetu tollþjón fylgja mjer þangað. Þóttist jeg hafa farið góða för upp á tollbúðina. — Jeg fjekk svo far alla leið til Winnipeg, í þriðja flokks vagni á járn- braut og öðru farrými á skipi, sem leggja átti af stað frá Liverpool daginn eftir. Til þess að vera sem lengst með Gísla, og fjelögum mínum af togaranum, valdi jeg mjer að fara með seinalest, sem átti að leggja af stað kl. 6ty2. Jeg fjekk hjá »agentinum« ávísun á skandina- viskt gistihús og sendi hann símskeyti þangað, að tekið yrði á móti mjer á járnbrautarstöðinui. — Á tilsettum tíma fylgdu skipverjar af togaranum mjer á járn- brautarstöðina. Hún virtist vera alveg manntóm. Jeg gekk þar að klefa, til þess að stíga inn; þar voru þá tveir ungir menn fyrir, og tóku á móti farangri mínum mjög fúslega. Þeir voru í vinnufötum og all- óhreinir. Fjelögum mínum leitst svo glæfralega á þá, að þeir vildu láta mig skifta um vagn. En jeg ljet mjer lynda að vera þarna, þó að auðsýnilegt væri að þeir væru dálítið kendir. Svo kom skilnaðarslundin, og jeg kvaddi landa mína með þökk. Þá fyrst fanst mjer að jeg vera að skilja við Island; jeg hafði ekki fundið til þess áður. — Svo rann lestin af stað og jeg var dálítið viðkvæmur og sat eins og í hálfgerðri leiðslu. Alt í einu hrökk jeg við, því að jeg fann, að handlegg var stungið undir handlegg mjer, og í sama bili var einnig hönd stungið inn undir hinn handlegg- inn. Þetta voru þá báðir piltarnir. Jeg spurði, hvað þeir vildu, og þeir sögðu mjer það og töluðu ört, en jeg skildi ekkert hvað þeir voru að segja. Svo tók jeg upp vasabók og blýant og bað þá að skrifa það, sem þeir vildu mjer. Þá skrifaði annar, að þá langaði til að vita, hvaða mál jeg hefði talað við þá, sem höfðu verið að kveðja. Jeg skrifaði svarið, og svo hófst einkennilegt samtal, bæði skriflegt og munnlegt. Jeg sagði þeim, hvert jeg væri að fara og í hvaða erindum. Þeir kváðust vera á leið heim til sín í Sheffield. Jeg skrifaði, að mjer þætti leitt að sjá svo efnilega unga menn hálfdrukna, og fóru þeir að af- saka sig. Þeir voru ákaflega innilegir og kurteisir, og reiddust ekki, þótt jeg segði þeim til syndanna. Þagar þeir skildu við mig, kvöddu þeir mig með handabandi, og skrifuðu í bókina, að þeir skyldu fara í K. F. U M. í Sheffield og segja, hvað jeg hefði sagt við þá; annar teiknaði sexboraða skeifu í bók mína sem fararheill. Jeg sá eftir þeim, er þeir voru farnir. Svo var jeg aleinn í lestinni, að minsta kosti í þeim vagni; jeg fjekk mikinn höfuðverk; svo sofnaði jeg, og var batnað, er jeg vaknaði. KI. 12 V2 um miðnætti var komið til Liverpool. Jeg vissi ekki til að aðrir kæmu út úr lestinni en lestarstjórinn og jeg; það var engan mann að sjá á stjettinni og enginn að taka á móti mjer, eins og jeg hafði vonast eftir. Jeg sneri mjer að lögreglumanni og sýndi honum nafn gisti- hússins, sem jeg ætlaði mjer til, og bað hann að út- vega mjer vagn. Hann gerði það og útskýrði fyrir ökumanni, hvert hann ætti að fara með mig. Það var afarlöng keyrsla. Loks komum við að gistihúsinu. Þar var alt dimt, ekki ljós í neinum glugga. Okumaðurinn barði og hringdi, en enginn kom til dyra. Svo tók hann eftir að lögreglu-innsigli var á dyrunum. Við • ókum svo að hóteli einu, en þar var alt fult. Hann kvaðst þekkja eitt »Temperance-Hotel« og bað jeg hann að aka mjer þangað. Svo ókum við hátt upp í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.