Óðinn - 01.01.1936, Síða 88

Óðinn - 01.01.1936, Síða 88
88 Ó Ð I N N Æfiminningar sjera Friðriks Friðrikssonar. Eftir prófessor Richard Beck. Andlegt frjómagn og helgunarafl sannrar kristni lýsa sjer hvergi jafn öfluglega og í lífi og starfi þeirra, sem fylgt hafa trúlegast fyrirdæmi meistara síns á jarðar- göngu sinni. Æfisögur slíkra eru því bæði vekjandi og eggjandi, kærkominn lestur kristilega sinnuðu fólki og þeim öllum, sem skipa siðferðislegum þroska í öndvegi menningarlegrar framsóknar. Svo munu flestir mæla, að sjálfsæfisaga sjera Frið- riks Friðrikssonar eigi tvímælalaust heima í flokki þess konar rita, en hún hefur, sem kunnugt er, verið að koma út í tímaritinu »Óðni« um nokkurt skeið, og er enn ólokið. >Undirbúningsárin«, fyrsta bindi þessara æfiminninga, var sjerprentað 1928, en framhald þeirra, »Starfsárin« (fyrsti partur), kom út í bókarformi fyrir eithvað ári síðan. í »Undirbúningsárunum« sagði, eins og nafnið bend- ir til, frá æsku höfundar og yngri árum, því timabili, þegar horf unglingsins við lífinu mótast auðveldast og varanlegast af umhverfi, atvikum og samneyti við aðra. Þá eru lagðir hornsteinar að framtíðarheill hlutaðeig- anda. Hvað sjera Friðrik snertir, var lífsskoðun hans — trúarvissa hans og eldheitur kristlegur áhugi — ekki bygð á foksandi augnabliksákvörðunar, heldur á kletfi langrar, harðrar trúarlegrar baráttu; og á þeim trausta grundvelli rís smámsaman og eflist víðtæk og blessunarrík starfsemi í þágu íslensks æskulýðs, þess hluta hverrar þjóðar, sem mest er þörf hollrar leið- sagnar. Frá þeirri starfsemi og aðdraganda hennar segir í »Starfsárunum«, en í inngangsorðunum að þeim kemst höfundur svo að orði (með Undirbúningsárin í huga): »]eg hafði fundið markmið mitt í heiminum, og Oissi, að hverju jeg ætlaði að stefna. Þess vegna endaði jeg bókina um undirbúningsárin á þessu tímabili, enda þótt þeim væri eigi að fullu lokið, því jeg sá engan Magnús Pjetursson státaði hjá nafninu H. v. Euler. Mjer er og kunnugt um, að prófessor v. Euler hafði mjög mikið áiit á Magnúsí sem vísindamannsefni. — Erfiðustu árin voru að baki. Það leið að náms- lokum. Heima biðu næg verkefni. Alt virtist leika í lyndi. —- Nú eru allar þær borgir brotnar. — Magnús, fjelagi og vinur. Orð og óskir, hversu einlægar sem eru, fá þig eigi afturkallað. En þakkir veg, hvernig byrja ætti, og hafði hugsað mjer að fara að öllu hægt og gætilega. Starfið lá framundan; jeg sá það í hillingum álengdur, og lagði það í Guðs hönd, hvenær og hvernig það ætti að byrja. En fyrsti liður starfsins áleit jeg að vera ætti námið á presta- skólanum. Svo yrði hitt að koma á einhvern veg«. Atburðaríkum prestaskólaárum sínum lýsir sjera Frið- rik því næst hispurslaust og skemfilega, eins og honum er lagið; kynnist lesandinn hjer talsvert ýmsum fremstu mönnum íslenskran kirkju, þáverandi og núverandi, og ber höfundur þeim öllum vel söguna; en þessi frá- sögn hans frá skólaárunum verður jafnframt næsta glögg lýsing á trúarlífinu í Reykjavík, og raunar víð- ar á landinu, því hann ferðaðist á þessum árum bæði norðan lands og vestan í kristilegum erindum, bein- línis eða óbeinlínis. Jafnhliða náminu vann sjera Friðrik fyrir sjer með drengja- og unglingafræðslu; hitt var þó enn meir um vert, að snemma á prestaskólaárum sínum hóf hann þegar kristilega æskulýðsstarfsemi sína, sem von bráð- ar bar ríkulega ávexti í stofnun Kristilegs fjelags ungra manna (K. F. U. M); bygði hann þar á reynslu sinni í slíkum fjelagsskap í Danmörku og naut aðstoðar og samúðar margra ágætismanna þarlendra og ís- lenskra, lærðra sem leikra. Var fjelagið stofnað 2. janúar 1899 með rúmlega 50 drengjum og hjet framan af »Kristilegt unglinga- fjelag*. Telur sjera Friðrik stofnfundinn rjettilega »einn af merkustu atburðum« lífs síns, því þar með var eigi að eins hlaðinn fastur grunnur að æskulýðs- starfi hans, heldur einnig brotið blað í nútíðarsögu íslenskrar kristni. Stuttu síðar stofnaði sjera Friðrik einnig Kristilegt fjelag ungra kvenna (K. F. U. K), í fyrstunni undir nafninu »Kristilegt stúlknafjelag«. Hafa bæði fjelögin dafnað vel og lifa góðu lífi, þó stund- um hafi að vonum verið á brattan að sækja. Og ekki eru þeir fáir unglingarnir, sem þar hafa orðið fyrir heilnæmum áhrifum, verið vísað til vegar, þegar þeir stóðu áttaviltir á einhverjum krossgötum æfi sinnar. Af öðrum atburðum frá prestaskólaárunum dvelur og árnaðaróskir litlu »nýlendunnar« okkar fylgja þjer yfir í ókunna landið. — Þú varst gæddur þeirri guðs- gáfu, að skapa alt af sólskin og sanna gleði í kring um þig. Við þökkum þjer margar sólríkar samveru- stundir. — Vertu sæll! Sigurður Þórarinsson. I
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.