Óðinn - 01.01.1936, Síða 93

Óðinn - 01.01.1936, Síða 93
Ó Ð I N N 93 En básúnur glumdu’ og gullu í geimnum pól frá pól: Fjarlægið helvítis hnöttinn, sem hangir í þreftándu sól! Mjer skjálfandi’ af ótta skildist, sú skipandi rödd hefði vald, en hjelt mjer samt dauðahaldi í herrans klæðafald. ]eg hafði’ í heiminum vanist við hnefa-at og slark. En fjekk nú af fætinum mikla eitt ferlegt heljarspark. Og burt frá þeim bjarta geimi jeg barst sem í vindi fis með Lúcífers leiguþjóni á leið til helvítis. Jeg eygði frá undirdjúpum stór eldgos og svartan reyk, og fann þaðan langar leiðir sem lykt af brendri steik. Mjer ógnuðu öskurhljóðin frá opnum vítis hver. En djöfullinn sá, sem dró mig, hló dátt við eyra mjer. Hann sagði: Þú sjerð þarna niðri þá Cæsar og Napóleon, og Alexander og Atla og Egil Skallagrímsson. Jeg spurði, hvort helvíti hýsti þær hetjur og kappalýð. Hann sagði: Þar eru allir, sem auka á jörðu stríð. Og allir, sem hafa ætlað, að umbæta Drottins verk. Hann vill, þeim sje haldið i heiðri, og hönd hans og reiði’ er sterk. En hjá honum eru hetjur, sem hafa í jarðlífsins vist með ástríki öllum hjálpað. Hann átti við Búdda’ og Krist. III. Jeg svaf eins og Skrímnir í skugga við skógarins leynistig, og ofan á enni mjer þaðan fjell akarn og vakti mig. Skógarljóð. I. Þegar sumarhauðrið hylst húmi á kvöldsins síundum, vaknar margt úr dái’, er dylst degi’ í skógarlundum. Meðan nýtur friðar fold, fugl í víði sefur, út úr lágu leyni’ í mold læðist svangur refur. Eins um nætur hugans heim húmsins sveimar vofa mörg frá duldum myrkra heim. Menn og skepnur sofa. Þar var læðst svo hægt og hljótt, heyrðu, -- það er óttinn. Þar var hvíslað þýtt og rótt, — það er sumarnóttin. II. I þessum þrönga skógi einn þjófur úr Ieyni skreið, braut rúðu hjá ríkis manni og rændi silfurskeið. Og lögreglan fór að leita. Um landið fór hræðslu sónn, er mitt inn í myrka skógnum fanst myrtur Iögregluþjónn. Og þjófurinn leyndist þarna, En því næst fregnin ber, að nóttina næstu á eftir hann náð hefði’ í silfurker. Nú stóðu menn vopnaðir víða á verði um myrkan skóg. En aftur kom fregn, sem uggi og ótta að fólki sló. Nú þrír lágu þarna dauðir, en þjófurinn sloppið gat og rjeðist ennþá á rúður og rændi úr búri mat. Hann einnig hálsfesfi og hringum frá herramanns frúnni stal.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.