Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1888, Page 92
92
Vildir þú fara inn til íslands aptur, ættir þú að
bera þig að stofna einhvers konar landvarnarlið, og~
fá þar við umsjónina. Hvað er það annars, sem þú
værir í haldinn með? Hver á að vera stiptamtmað-
ur? Væri jeg jöfur, þá skyldir þú vera æðsti hers-
höfðingi til lands og sjóar, en Bj(arni)1 jarl eða hirð-
stjóri, St(eingrímur) J(ónsson) biskup á Hólum, en
Á(rni)2 verða það fyrir sunnan fjall. J>að er satt.
f»ú spyr mig um mína hagi. Jeg held jeg verði
Hrólfur ferðamaður Ásgrímsson að norðan eða
kannske Gönguhrólfur að lokunum! Annars satt
að segja ætla jeg ekkert fyrir mjer nema að halda
áfram smávegis, eins og jeg hefi byrjað, þegar færi
gefst. Einhvern tíma i vetur held jeg vístjegkomi
austur í Garða, verði mögulegt að komast yfir
Helsingjabotn til Ábús á isi eður opnum sjó—jeg
held hitt, þvf hjer er nú allra mesta grimmdar frost
eins og í Reykjavík um jólaleytið. Lifðu sæll og
minnugur
þíns
R. R.
15.
Stokkhólmi 12. febr. 1818.
Elsku vinur!
Svo jeg fylli þennan miða með einhverri mark-
leysunni, ætla jeg að skrifa hjer upp ofurlitla orða-
bók, hentuga fyrir hvern mann sjálfsagt, en þó vildi
jeg helzt bera hana undir ykkur Finn og Bjarna
1) o: Thorsteinsson. Utg.
3) o: Helgason. Utg.