Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1888, Page 111
111
anlegt á tali hans, að hann áliti oss svo brögðótta,
að við upp á þennan máta ætluðum að ná undir
okkur einkarjettum landsuppfræðingarfjelagsins til
að útgefa vissar bækur, svo sem barnalærd., sálma-
bók o. fl...........................................
..............Annars er jeg vel ánægður, að við-
komendur eru þessu svo frábitnir, en hitt líkar mjer
miður, að þeir gruna okkur um þá prettvísi, sem
engum hefir í hug dottið.
f»inn
Thorsteinson.
C. Frá Grírcii Jónsyni.
7.
Kaupmannahöfn 18. des. 1817.
í>ú talar um, að jeg skuli stofna landvarnarlið á
íslandi. Biddú guð um þig! J>að er nú helzt til
fallið á þessum tímum, að koma uppá slíkt! Mundi
það ekki álítast einasta til að trana mjer fram, færi
jeg fram á slíkt. Jeg hefi ekkert annað að gera
en yfirláta forsjóninni að ráða, hvort hún vill jeg
skuli fá hentugleika til að verða mínu vesælings
íslandi að nokkuru liði. |>etta er mín mesta og ein-
asta ósk nótt og dag, en til að trana mjer fram er
jeg ónýtur. Mjer fer það svo klaufalega, eins og