Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Page 148

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Page 148
148 EINAR BJARNASON leyti endurtekning á því, sem fyrr hefur verið skrifað. Síðan kemur ættartala föður Hjalta á Gilsá, Jóns bónda á Æsustöðum í Eyjafirði Jónssonar. Þar segir, að faðir Jóns hafi verið Jón Ormsson, góður bóndi úr Flatey, er líka hafi verið á Flateyjardal, sonur Orms sterka, er einnig hafi alizt þar upp. Móðir Jóns á Æsustöðum hafi verið Guðrún Hálfdanardóttir Böðvarssonar, dóttir Astríðar laundóttur Björns lögréttu- manns á Bakka í Öxnadal Hákonarsonar. Þessi frásögn verður varla rengd þegar manntalið 1703 telur búa í Krosshúsum í Flatey Jón Jónsson, 22 ára, vafalaust ókvæntan, og bústýru hans þar Guðrúnu Hálfdanardóttur, 50 ára, sjálfsagt móður hans. Á 67. blaði hefst ættartala síra Björns í Saurbæ Gíslasonar, og síðar er rakin ætt konu hans. Gengur þetta fram á 69. blað og er allt haft eftir eldri skráðum heimildum. Næst er sagt hver hafi verið faðir Sigríðar konu Benedikts klausturhaldara á Möðru- völlum Pálssonar, en síðan er rakin saman ætt þeirra Björns lögmanns Markússonar og síra Gunnlaugs á Laugalandi Eiríkssonar. Á aftari síðu 69. blaðs hefst föðurætt Einars hospítalshaldara í Möðrufelli Jónsson- ar. Hún mun vera rétt rakin að öðru leyti en því, að síra Einar faðir Jóns á Steinsstöð- um er talinn Jónsson, og sennilega hefur höfundur ekki þekkt framætt síra Einars. Höf. skýrir frá því, sem óvíða er skýrt frá annarsstaðar, að föðurmóðir Rósu ömmu Einars í Möðrufelli hafi verið Sigríður dóttir Sigfúsar lögréttumanns á Öxnhóli Ólafssonar, og er ekki ástæða til að rengja þá ættfærslu. í framhaldi af ættfærslunni eru raktar ættir kunnra manna frá 17. og 16. öld og lengra aftur, og er ekkert af því frumskráð hér. Þetta nær langt fram á 74. blað, en þá tekur við móðurætt Jóns bónda í Sam- komugerði Jónssonar á Skarði í Dalsmynni Árnasonar. Kona Jóns Árnasonar, sem 1703 býr á Kambsstöðum í Ljósavatnsskarði, var Ingibjörg Halldórsdóttir systir Gamla á Hróastöðum, sem getið er framar í handritinu. Móðir hennar er hér nefnd Guðrún Þórarinsdóttir, og mun það vera sú, sem 1703 er 70 ára á Melurn í Fnjóskadal. Guðrún þessi mun vera síðasta kona Halldórs og ekki móðir Gamla, þótt höf. geti þessa ekki. Ætt Guðrúnar mun vera rétt rakin í handritinu. Á eftir þessu er því skotið inn liver hafi verið kona Sveins á Torfufelli Ólafssonar, og er hið sama sagt sem á fyrsta smáblaðinu milli 59. og 60. blaðs, þar þó nokkru fyllra. Næst þessu kemur niðjatal Þorláks biskups Skúlasonar, en að vísu ekki tæm- andi. Þar hefur höf. gert þá skyssu að telja einn son Þorláks biskups Hallgrím sýslu- mann í Múlasýslu, en Hallgrímur sá, sem hann á við, var sonur Jóns sýslumanns Þor- lákssonar. Ætla má, að skekkja þessi stafi af því, að höf. hafi haft fyrir sér niðjatal Þorláks biskups, sem hafi verið svo ógreinilegt, að hann villtist á merkjunum. Á 76. blaði er innskot með annarri hendi en höfundar, er segir nokkru fyllra frá niðjum Skúla landfógeta Magnússonar. Á 77. blaði er sagt frá því hverjar hafi verið dætur Björns sýslumanns á Espihóli Pálssonar. Á sama blaði er ættartala síra Þorláks í Miklagarði Grímssonar, og eru þar hinar sömu rangfærslur um framætt Hrólfs sterka Bjarnasonar sem að framan er getið. Héðan og fram að aftari síðu 82. blaðs eru raktar ýmsar kunnar höfðingjaættir á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.